Skæðir skógareldar sem kviknuðu á grísku eyjunni Krít í gær neyddu um átta þúsund manns á flótta. Enn er barist við elda á Spáni og í Frakklandi, þar sem staðan virðist þó vera að skána.
Eldarnir á Krít komu upp á norðurströnd eyjunnar og þeir voru illviðráðanlegir í miklu roki og heitu veðri og vitað er um þrjá slökkviliðsmenn sem létust í baráttunni við eldana. Um 8 þúsund íbúar og ferðamenn hafa þurft að yfirgefa svæðið.
Svo virðist sem einhver árangur hafi náðst í slökkviliðsstarfinu en Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, segir erfiða daga vera fram undan.
Um 5000 ferkílómetrar lands brunnið frá áramótum
Ríflega 1400 skógareldar hafa verið skráðir í Evrópu frá áramótum og um 5000 ferkílómetrar lands brunnið. Á Spáni virðist staðan vera að skána og neyðarástandi var aflétt vegna eldanna nálægt Madrid.
Í Frakklandi segjast slökkviliðsmenn vera hægt og bítandi að ná tökum á eldunum nálægt Bordeaux og sumir hafa fengið að fara heim en aðrir eiga ekkert heimili lengur.