Tæknirisinn Apple hefur breytt heiti Ontario-vatns í Ameríkuvatn á bandarískum kortavef sínum og smáforriti.
Fyrirtækið fetar þannig í fótspor Google sem brást hratt við tilskipun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um nafnbreytinguna. Vatnið er á landamærum Kanada og Bandaríkjanna.
Fyrir notendur handan landamæranna heitir það áfram Ontario-vatn. Rekja má tilskipun Trumps til tollastríðs Bandaríkjanna og Kanada sem hófst þegar samkomulagsviðræður runnu út í sandinn. Forsetinn breytti nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á síðasta ári.