Angjelin Sterkaj, sem árið 2023 var dæmdur í sextán ára fangelsi í Hæstarétti fyrir morð á Armando Beqirai í svokölluðu Rauðagerðismáli, hefur verið veitt reynslulausn og vísað úr landi.Frá þessu greinir Vísir og staðfestir Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri málið í samtali við miðilinn. Rauðagerðismálið kom upp í febrúar 2021 en Armando var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt.Angjelin, sem er frá Albaníu, sætir endurkomubanni til landsins.
Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu – Fékk 16 ára dóm 2023