Andri hafi verið yfir­vegaður við hand­tökuna - Vísir

Andri hafi verið yfir­vegaður við hand­tökuna - Vísir

Andri hafi verið yfir­vegaður við hand­tökuna - Vísir

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024. Aðalmeðferðin hófst fyrir viku síðan og hafa allir ákærðu komið fyrir dómara og ýmist svarað spurningum eða neitað að tjá sig.

Fyrir hádegi mætti lögreglumaður á Möltu fyrir dóm í gegnum fjarfundarbúnað. Hann sagðist hafa fengið tilkynningu um klukkan þrjú um nótt um að maður hefði verið vistaður á sjúkrahúsi eftir líkamsárás.

Aðstandendur brotaþolans höfðu sagt lögreglumanninum að einhverjir hefðu farið inn í hús brotaþolans og haldið honum þar í þrjá daga. Nefnir hann Sigurð leigusala og dóttur hans.

Sömuleiðis kom lögreglumaður sem rannsakaði muni sem fundust á vettvangi í Reykholti. Af þeim munum sem sendir voru í rannsókn á erfðaefni var hægt að greina erfðaefni brotaþola á gaffer-teipi. Erfðaefnið kom úr blóði á teipinu.

Vandræði með tæknina í dómssal hafa sett sitt mark á aðalmeðferðina og sömuleiðis erfiðleikar með túlkaþjónustu. Því lítur allt út fyrir að aðalmeðferðinni muni ekki ljúka fyrr en á fimmtudag eða föstudag. Maltneskir læknar sem áttu að bera vitni í dag bera því vitni frekar seinna í vikunni.

Tæpar átján milljónir millfærðar

Lögreglan lét framkvæma fjármálagreiningu á reikningum brotaþola. Þar kemur í ljós að af reikningi brotaþola fóru 1.960.000 krónur á reikning í eigu Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar og 8,5 milljónir á reikning í eigu Andra Más.

Þá voru 3,7 milljónir millifærðar á reikning í eigu Péturs Más Mortensen Birgissonar og 3,5 milljónir á Ingunni Rut Sigurðardóttur. Öll eru þau ákærð í málinu.

Eftir á millifærðu þau sín á milli og millifærði Sigurður Gunnar sex hundruð þúsund inn á reikning Andra og hundrað þúsund krónur inn á reikning Ingunnar.

Tók við fyrsta símtalinu

Sjö lögreglumenn sem komu að einhverju leyti að rannsókn málsins komu fyrir dómara eftir hádegi. Fyrst var sá sem tók við málinu upprunalega og sagðist hann hafa fengið símtal á þriðjudagskvöldi í apríl 2024 um að brotaþola væri saknað.

Það var þriðjudagurinn 23. apríl en sakborningum er gefið að sök að hafa frelsissvipt brotaþola frá 19. til 22. apríl 2024.

Sá sem hafði samband við lögreglu var yfirmaður brotaþola. Bíllinn væri horfinn og lykillinn ekki í íbúð hans, sem væri óvenjulegt.

„Á miðvikudagsmorguninn tek ég á móti símtali frá konu sem segist vera dóttir brotaþola. Hún lýsti gríðarlega miklum áverkum,“ segir lögreglumaðurinn.

Rannsóknin hafi beðið þar til lögreglan fékk afhent gögn í málinu. Haft hafi verið samband við lögregluna á Suðurnesjum til að fá staðfest hvort að brotaþoli hefði farið úr landi.

„Ég fékk skýrslu í hendurnar sem sýnir á hvaða bíl hann hefði komið og þar sem hann kveður tvo einstaklinga með handabandi við öryggisleitina.“

Sigurður farinn þegar lögreglan mætti

Lögreglunni bárust undir lok vikunnar nánari upplýsingar svo hægt væri að ráðast í handtökur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók Andra og Ingunni á heimili þeirra í Kópavogi og lagði leið sína heim til Sigurðar í Reykholti.

Hins vegar hafi hann ekki verið heima og þegar samband náðist við hann í gegnum síma reyndist Sigurður vera í Reykjavík. Hann samþykkti að ræða við lögregluna.

Þegar lögreglumennirnir komu í íbúðina hafi Sigurður Gunnar verið farinn og sögðu nágrannarnir að hann hefði keyrt á brott skömmu áður. Þegar lögreglan hafði uppi á honum sagðist Sigurður vera á leið til lögmannsins síns.

Hlaupbangsar, haglabyssa og hnúajárn

Lögreglumaðurinn sem var viðstaddur handtöku Ingunnar og Andra segir að Andri hafi verið afar rólegur við handtökuna sjálfa.

„Hann var frekar yfirvegaður og sýndi fullan skilning. Svo var gerð húsleit þegar lögfræðingur var kominn. Það er listi í skýrslunni en ég man eftir að það var afsöguð haglabyssa, hnúajárn, bíllyklar og bíll í bílageymslu, fíkniefni, kylfur,“ segir hann.

Þetta á að hafa fundist vítt og dreift um íbúðina sjálfa, í svefnherbergjunum tveimur, alrýminu og á svölunum. Leitin hafi farið fram um leið og lögmaður mætti á vettvang.

Lögreglumaðurinn sem vann að skýrslu um fíkniefnin sem eiga að hafa fundist í íbúðinni var spurður fárra spurninga. Hann tók fram að efnin sem fundust við leitina í íbúðinni væru amfetamín, kannabisblandað efni og maríjúana. 

Hluti þessa hafi verið í formi hlaupbita en hefur einn sakborningurinn játað að hafa átt hlaupbitana en ekki hin fíkniefnin.

Kvöddust með handarbandi

Ýmsar skýrslur eru bornar undir lögreglumennina, svo sem skýrsla um bíllykla sem fundust á Pétri við handtöku og hníf sem fannst í bíl sem lögreglan lagði hald á. 

Sömuleiðis var rýnt í ljósmyndaskýrslu tekna saman af lögreglumanni á Keflavíkurflugvelli. Þar sjást tvær myndir úr öryggismyndavélum af brotaþola og tveimur manneskjum sem talin eru vera Ingunn og Andri. Í texta við myndirnar segir að þau hafi kvatt hvort annað með handabandi.

Lögreglumaðurinn, sem hefur látið af störfum í dag, segist hafa fylgt brotaþola í gegnum flugvöllinn þar sem hann gekk frá vopnaleitinni að brottfararhliðinu.

Brotaþoli hafi ekki gert neitt á leiðinni, öllum veitingastöðunum hafi verið lokað og fáir á ferli. Hann hafi ekki rætt við neinn á leiðinni.

Fann upptökur Andra

Lögreglumaðurinn sem fór yfir símtæki sakborninganna var meðal þessara sjö lögreglumanna sem gáfu skýrslu. 

Hann var sá sem fann upptökuforritið í síma Andra en forritið hafði tekið upp öll símtölin hans og voru þau spiluð fyrir dómara við byrjun aðalmeðferðarinnar.

Í þeim síma fundust einnig Signal-skilaboð til „Níels besta“ þar sem talað var um að koma einhverjum fyrir í baðkari, hóta með barnaklámi eða láta líta út fyrir að hann hafi tekið eigið líf. Þegar Níels Pálmar, einn ákærðra, kom fyrir dómara í síðustu viku þvertók hann fyrir að hafa notað Signal yfirhöfuð.

Lögreglumaðurinn sagði sömuleiðis að hann hefði reynt að komast yfir staðsetningar símtækja sakborninga en einungis komist yfir staðsetningu síma Péturs einu sinni, sem þá var í Reykholti.

#andri #hafi #verið #við #yfirvegaður

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262925306d/andri-hafi-verid-yfirvegadur-vid-handtokuna

📰 Aðrar fréttir

Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
📅 25.11.2026 👁️ 0
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
Sunday’s election could see a far-right party enter the Spanish government for first time.
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
📅 25.11.2026 👁️ 0
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
Leaked data reveal how the full-scale invasion of Ukraine has fundamentally changed mortality patterns in Russia.
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
📅 25.11.2026 👁️ 0
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
Bandarískur kviðdómur sakfelldi í dag tæknirisann Huawei fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum.Réttarhöldin yfir Huawei stóðu yfir í þrjá mánuði fyrir al...
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 0
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
📅 25.11.2026 👁️ 1
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
Domestic gas prices will rise significantly in January under regulator Ofgem's new price cap.
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
📅 24.11.2026 👁️ 2
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í...
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
📅 24.11.2026 👁️ 1
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhver...
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags. Þetta er 75. keppnin sem hald...
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
📅 24.11.2026 👁️ 1
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
More young people in Britain have never had sex, but many are sexting and watching porn. 
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 1
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
Thomas Markle indicted in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 0

China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
📅 24.11.2026 👁️ 1
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
The network attacked key figures in the ruling DPP, including President Lai and mayoral candidate Shen.
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
„Ef Rússarnir halda áfram að þykjast minnislausir og dæla í okkur sagnfræði í stað þess að ná fram niðurstöðum í viðræðum, mun sá tími koma að það tek...
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
„Markmiðið er þar að stuðla að auknu samræmi, sérþekkingu og jafnræði við meðferð barnaverndarmála óháð því hvar barnið á heima,“ segir Inga Sæland, m...
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 2
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 3
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
📅 24.11.2026 👁️ 2
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
Andy Burnham says veterans will get 'the full truth' as he confirmed plans for an investigation into the health legacy of Britain's Cold War-era atomi...
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 2
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 3
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 4
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 4
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 5
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að rík...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 6
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 6
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði á...
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
📅 24.11.2026 👁️ 7
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa ver...
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
📅 24.11.2026 👁️ 4
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
The verdict follows a months-long trial in New York.
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
📅 24.11.2026 👁️ 3
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum V...
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
📅 24.11.2026 👁️ 3
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að ...
Efasemdir um Stafræna heilsu
📅 24.11.2026 👁️ 5
Efasemdir um Stafræna heilsu
Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að ...
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
📅 24.11.2026 👁️ 3
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti ve...
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
Ragnheiður Harpa er fædd árið 1988 og hefur komið víða við í bókmenntaheiminum en hún hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand...
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á D...
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.Lögregl...
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
📅 24.11.2026 👁️ 3
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra ...
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu...
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
📅 24.11.2026 👁️ 3
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki...
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
Þetta segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki staðfest nafn seinni skól...
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 2
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 3
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 5
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 5
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
📅 24.11.2026 👁️ 6
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif Fréttin24. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Rannsókn, TransmálLeave a...
Fears over the AI boom haven't gone away
📅 24.11.2026 👁️ 6
Fears over the AI boom haven't gone away
There were legitimate fears before Huang's abrupt exit from Nvidia - and his return won't fix it
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í rusl­pósti - Vísir

Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
📅 24.11.2026 👁️ 4
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 ...