Langar raðir mynduðust við bensínstöðvar í höfuðborg Írans í dag vegna efnahagsaðgerða sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Íbúar búa sig undir enn meira félagslegt og efnahagslegt álag.
Íranar framleiða minna eldsneyti en þörf er fyrir og samkvæmt yfirvöldum er daglegur halli upp á að minnsta kosti 14 milljónir lítra á dag.
Íranar hafa búið við viðskiptaþvinganir áratugum saman, verðbólga er himinhá og efnahagsástandið var þegar bágt áður en stríðið hófst í lok febrúar.
Ljóst er að efnahagsaðgerðir sem Bandaríkin boðuðu gegn Íran í gær gætu haft enn frekari áhrif, gangi þær í gegn.