Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að Laugavegi 16, Center Hótel Skjaldbreiði, um klukkan hálfeitt í nótt eftir að tilkynnt var að mikill reykur bærist frá húsinu.
Erfiðlega hefur gengið að finna upptök eldsins sem eru í kjallara hótelsins að sögn Guðmundar Hreinssonar varðstjóra. Hótelið hefur að stórum hluta verið rýmt því mikill reykur barst um ganga þess.
Fréttin verður uppfærð. Veistu meira, áttu ljósmyndir eða myndskeið? Slíkt má senda á netfangið frettir@ruv.is.