AGS varar við verðtryggingu en er með tvíbent skilaboð um evru
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur til að Íslendingar ræði kjaramál upp á nýtt og varar við verðtryggingunni, sem geti gert verðbólgu þráláta. Umbætur séu nauðsynlegar, hvort sem evra verði tekin upp eða ekki.
Ísland hefur nú þegar tekið stór skref sem þarf til þess að taka upp evruna, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í nýrri ársskýrslu sjóðsins um Ísland er bent á kosti og galla upptöku evru og varað við því að verðtrygging í íslensku efnaghagslífi geti viðhaldið verðbólgu.
Í mati sjóðsins kemur fram að það „kann að vera þörf á“ meiri vaxtahækkunum „í nálægri framtíð“, ekki síst ef forsendur kjarasamninga bresta með því að verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst. Það virðist óumflýjanlegt, en verðbólga er nú 5,3% og hafa greiningadeildir spáð svipaðri verðbólgu áfram.
Viðvörunarorð um verðtryggingu
Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram að útbreiðsla verðtryggðra lána dragi úr áhrifum stýrivaxtahækkana, en þau voru 54% húsnæðislána við vinnslu skýrslunnar.
„Margir samningar á Íslandi eru tengdir verðbólgu. Þetta á til dæmis við um leigu, veituþjónustu, opinber innkaup, margar bætur, kjarasamninga með sérstökum verðbólguviðmiðum, sem og húsnæðislán,“ segir í skýrslunni. „Þetta gæti gert verðbólgu …