Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur ákært konu fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs fyrir að hafa afritað og hlustað á einkaskilaboð á milli ónefnds einstaklings og starfsmanna ónefndrar starfsstöðvar.
Í ákæru yfir konunni er því lýst að í desember 2024 hafi konan farið inn á starfsstöð og skráð sig inn í tölvu á aðgangi einstaklings.
Búið er að afmá nafn starfsstöðvarinnar í ákærunni.
Dreifði til starfsmanna
Í ákærunni segir að konan hafi hlustað og lesið einkaskilaboð á milli einstaklingsins og starfsmanna starfsstöðvarinnar, afritað þau og dreift þeim til annarra starfsmanna.
Segir í ákærunni að ákærða hafi meðal annars afritað og sent hljóðskilaboð á milli ólíkra einstaklinga.
Á vefsíðu dómstólsins segir að málið lúti að broti í opinberu starfi. Aðalmeðferð er fyrirhuguð í október.