Veðrið ber meiri blæ vetrar en sumars á norðan- og austanverðu landinu þar sem útlit er fyrir él og hita nálægt frostmarki. Bjartara verður yfir annars staðar á landinu en þar verður þó ekki sérstaklega hlýtt, þrjú til sjö stig.
Veðrið verður svipað fram á föstudag þegar vestlæg átt verður ríkjandi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu og él, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestanlands. Líkur á stöku skúrum syðst á landinu seinnipartinn.
Norðlæg átt þrír til átta á morgun, en heldur hvassara á suðaustanverðu landinu. Stöku él á austanverðu landinu og sums staðar einnig norðantil, en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum.
Hiti um frostmark norðan- og austantil en að 7 stigum sunnan- og vestanlands.