Breska leikkonan Olivia Colman afhjúpaði smá grín sem hún gerði við meðleikkonu sína í The Favourite, Emmu Stone, þegar þær tóku upp kynlífssenu saman. Stone man það sem gerðist aðeins öðruvísi.
Í myndinni frá 2018 lék Colman Önnu drottningu og Stone lék herbergisþernuna Abigail. Colman vann til fjölda verðlauna fyrir hlutverk sitt, þar á meðal Óskarsverðlaun og Golden Globe verðlaun.
Í viðtali í The Graham Norton Show þegar myndin kom út minntist Colman þess að hafa notað svamp á mjög náinn hátt með Stone. Áður en tökur á kynþokkafullri senunni hófst segist Colman hafa hlaupið í förðunardeildina til að athuga hvort þar væri aukasvampur sem hún gæti notað.
Í þessari tilteknu senu þarf persóna Stone að „fingra“ Colman, eins og hún orðaði það við Norton og aðra fræga gesti þáttarins.
Stone var svolítið stressuð yfir að taka upp þessa senu. Colman ákvað því að setja svamp milli fóta sér, til að koma í veg fyrir að Stone snerti hennar einkastaði. Stone vissi þó ekki að svampurinn væri blautur.
„Andlit hennar var eins og mynd,“ sagði Colman. „Hún var að fara upp fótinn á mér og hún var alveg: Urgh!““
Stone var eftir þetta spurð út í atvikið í The Jonathan Ross Show.
„Hún segir söguna eins og þetta hafi veriðóvænt, en ég bað um þennan svamp. Ég þarf að fitla við Oliviu Colman í myndinni, svo ég þarf fara undir pils hennar og þarf að hreyfa handlegginn eins og eitthvað sé að gerast. Svo við settum rakan svamp… og svo þurfti ég bara að strjúka svamp.“
Colman viðurkenndi síðar að hún sé í raun hrædd við að taka upp kynlífssenur. Segir hún að sumar senur fái hana til að finnast hún vera ótrú eiginmanni sínum. Hún hefur verið gift Ed Sinclair síðan 2001.
Í viðtali við Amy Poehler í þættinum Good Hang í fyrra sagði Colman: „Allar senur þar sem ég þarf að sýna nekt líkar mér ekki. Eða að þykjast stunda kynlíf … mér líkar það ekki. Mér finnst ég vera ótrú. Jafnvel þegar þau segja: „Þú mátt vera í gallabuxunum þínum,“ eða vers með púða á milli ykkar. Ég vil ekki gera þessar senur.“