Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík - Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa - DV

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík - Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa - DV

Vændisstarfsemi lifir góðu lífi hér á landi. Þetta kemur fram í umfjöllun Kveiks í kvöld. Þar fóru fréttamenn um svokallað „rauða hverfi“ Reykjavíkur og fylgdust með tíðum mannaferðum vændiskaupenda á hóteli í Einholti. Einn var handtekinn og endaði með að greiða 200 þúsund króna sekt. Talsmenn Bjarkarhlíðar og Stígamóta telja að breytinga sé þörf, vændiskaup þurfi að hafa afleiðingar.

Kveikur ræddi meðal annars við íslenska konu sem hefur reynslu af vændi. Hún var stödd erlendis í fjárhagserfiðleikum þegar hún kynntist manni sem ákvað að nýta sér neyð hennar. Þrátt fyrir að hafa samþykkt fyrst að selja vændi missti konan fljótlega alla stjórn á aðstæðum. Maðurinn sem gerði hana út heimtaði þriðjung launa hennar og stjórnaði henni alfarið. Hún lýsir því hvernig vændiskaupendur beittu hana hrottalegu ofbeldi.

Flestar konur sem selja vændi á Íslandi eru þó erlendar en kaupendurnir eru flestir íslenskir karlmenn. Þessir menn eru á öllum aldri, úr ólíkum stéttum og starfsgreinum.

„Maður hefur heyrt að menn séu að fara bara til og frá vinnu, keyra börn í leikskólann, eru að fara á erfiðan fund. Bara aðeins að droppa þarna við áður,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð. Flestar konur sem selja vændi gera það af neyð, svo sem vegna neyslu eða fjárhagsvanda. Bjarkarhlíð hefur tekið eftir því að vændi er farið að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi þar sem konur eru fluttar hingað til lands gagngert til að gera þær út í vændi. Til Bjarkarhlíðar leitaði nýlega kona sem hafði þjónustað áttatíu einstaklinga á þremur sólarhringum, en lögregla telur nær fullvíst að hún sé þolandi mansals og send landa á milli.

Að sögn lögreglu er vændisstarfsemi töluverð á Íslandi í dag. Þegar um skipulagða brotastarfsemi er að ræða fær konan oft ekki mikið meira en helminginn af því sem hún þénar. Fyrir ofan hana í píramídanum er aðili sem sér um auglýsingar og rafræn samskipti og svo annar milliliður sem sér um bókanir. Á toppnum situr svo höfuðpaurinn. Konurnar eru gjarnan að hitta menn sem þær hafa ekki valið sjálfar og án þess að vita hvernig þjónusta þeirra hefur verið auglýst og hverju kaupendur búast við frá þeim.

„Yfirleitt eru þetta karlar sem kaupa konur, þeir líta á konur sem hluti eða kjötstykki eða eitthvað til þess að þjóna sér. Þegar þú hefur þannig viðhorf að þá – svona afmennskunarviðhorf – að undir slíkum kringumstæðum er ofbeldi algengara,“ segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta.

Vændisstarfsemi fer meðal annars fram á hótelum á vegum Stay Apartments. Fréttamenn Kveiks vöktuðu eitt slíkt hótel í Einholti og fylgdust með tíðum mannaferðum í herbergi númer 214. Fleiri staðir eru nefndir í umfjölluninni þar sem fram kemur að sums staðar sé vændisstarfsemi það algeng að kalla mætti það vændishús. Eitt slíkt hús má finna í niðurníddu húsnæði í Túnunum. Nágrannar eru meðvitaðir um hvað fer þar fram og hafa reynt að fæla vændiskaupendur frá, svo sem með skjávarpa sem varpar varnarorðum á húsvegginn. Þar er vændiskaupendum bent á að slíkt sé ólöglegt og að vændiskaup verði tilkynnt til lögreglu.
0
Drífa og Jenný telja að það sé of auðvelt að kaupa og selja vændi á Íslandi. Þessu mætti breyta svo sem með því að birta nöfn vændiskaupenda sem eru staðnir að verki. Einhverjar afleiðingar þurfi að vera af vændiskaupum.

Nánar má kynna sér málið í umfjöllun Kveiks hjá RÚV. 

 

#vændiskaupendur #reykjavík #nágrannar #skjávarpa #afhjúpa


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/28/afhjupa-rauda-hverfid-reykjavik-nagrannar-reyna-ad-faela-vaendiskaupendur-fra-med-skjavarpa/

📰 Aðrar fréttir

Kóperníkus: Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en önnur svæði jarðar
📅 29.04.2026 05:45:11 👁️ 1

Kóperníkus: Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en önnur svæði jarðar

#kóperníkus#tvöfalt#evrópa#hlýnar#hraðar
Al Fayed survivor was modern slavery victim, Home Office says
📅 29.04.2026 05:00:12 👁️ 1

Al Fayed survivor was modern slavery victim, Home Office says

#survivor#slavery#modern#victim#office
Líklegt þykir að þingnefnd gangi eftir svörum stríðsmálaráðherrans um stöðu styrjaldarinnar
📅 29.04.2026 04:30:19 👁️ 1

Líklegt þykir að þingnefnd gangi eftir svörum stríðsmálaráðherrans um stöðu styrjaldarinnar

#stríðsmálaráðherrans#styrjaldarinnar#þingnefnd#líklegt#svörum
Sameinuðu þjóðirnar segja mikinn heilbrigðisvanda fylgja umfangsmiklu kynferðisofbeldi stríðandi fylkinga
📅 29.04.2026 03:45:11 👁️ 1

Sameinuðu þjóðirnar segja mikinn heilbrigðisvanda fylgja umfangsmiklu kynferðisofbeldi stríðandi fylkinga

#heilbrigðisvanda#kynferðisofbeldi#umfangsmiklu#sameinuðu#þjóðirnar
Talsverð aukning í bílasölu — rafbílar meira keyptir hér en í Evrópuríkjum
📅 29.04.2026 03:00:19 👁️ 1

Talsverð aukning í bílasölu — rafbílar meira keyptir hér en í Evrópuríkjum

#evrópuríkjum#talsverð#bílasölu#rafbílar#aukning
Weeks of silence over Iran school strike highly unusual, former officials say
📅 29.04.2026 02:01:50 👁️ 1

Weeks of silence over Iran school strike highly unusual, former officials say

#officials#silence#unusual#school#strike
Kenískir lögreglumenn hætta glímunni við illskeytt glæpagengi
📅 29.04.2026 02:00:24 👁️ 1

Kenískir lögreglumenn hætta glímunni við illskeytt glæpagengi

#lögreglumenn#glæpagengi#illskeytt#kenískir#glímunni
Sonur indversks auðkýfings vill flóðhesta Pablo Escobar
📅 29.04.2026 01:15:11 👁️ 1

Sonur indversks auðkýfings vill flóðhesta Pablo Escobar

#auðkýfings#indversks#flóðhesta#escobar#sonur
Olíuverð heldur áfram að hækka
📅 29.04.2026 00:27:28 👁️ 1

Olíuverð heldur áfram að hækka

#olíuverð#heldur#áfram#hækka
Former FBI director James Comey charged with threatening Trump's life in Instagram post
📅 29.04.2026 00:24:05 👁️ 2

Former FBI director James Comey charged with threatening Trump's life in Instagram post

#threatening#instagram#director#charged#former
Vonar að ríkin standi saman og hunsi kröfur um að einangra sig
📅 28.04.2026 23:51:08 👁️ 1

Vonar að ríkin standi saman og hunsi kröfur um að einangra sig

#einangra#standi#kröfur#vonar#ríkin
Care scheme could prevent thousands of miscarriages a year
📅 28.04.2026 23:47:41 👁️ 1

Care scheme could prevent thousands of miscarriages a year

#miscarriages#thousands#prevent#scheme#could
Trump to feature on limited number of commemorative US passports
📅 28.04.2026 23:41:00 👁️ 1

Trump to feature on limited number of commemorative US passports

#commemorative#passports#feature#limited#number
11 cancers on the rise in young people - scientists find first clue why it's happening
📅 28.04.2026 23:40:52 👁️ 1

11 cancers on the rise in young people - scientists find first clue why it's happening

#scientists#happening#cancers#people#young
Tvöföldun í kosningu utan kjörfundar
📅 28.04.2026 23:20:54 👁️ 1

Tvöföldun í kosningu utan kjörfundar

#kjörfundar#tvöföldun#kosningu#utan
A financial crisis may be coming - it won't be like last time
📅 28.04.2026 23:17:58 👁️ 1

A financial crisis may be coming - it won't be like last time

#financial#crisis#coming#like#last
Reform is not racist, Welsh leader says in Senedd election debate
📅 28.04.2026 23:07:25 👁️ 1

Reform is not racist, Welsh leader says in Senedd election debate

#election#reform#racist#leader#senedd
Face serum advert banned over misleading 'five years younger' claim
📅 28.04.2026 23:02:15 👁️ 1

Face serum advert banned over misleading 'five years younger' claim

#misleading#younger#advert#banned#serum
Trump mun prýða bandarísk vegabréf
📅 28.04.2026 22:55:19 👁️ 1

Trump mun prýða bandarísk vegabréf

#bandarísk#vegabréf#trump#prýða
Kölluð út á efsta for­gangi þegar tveir féllu út­byrðis - Vísir
📅 28.04.2026 22:34:19 👁️ 1

Kölluð út á efsta for­gangi þegar tveir féllu út­byrðis - Vísir

#forgangi#útbyrðis#kölluð#efsta#þegar
Að ó­breyttu muni um­ferðin halda á­fram að þyngjast - Vísir
📅 28.04.2026 22:31:45 👁️ 1

Að ó­breyttu muni um­ferðin halda á­fram að þyngjast - Vísir

#óbreyttu#umferðin#þyngjast#halda#áfram
Jafnrétti ofarlega í huga barnaþingmanna
📅 28.04.2026 22:06:56 👁️ 1

Jafnrétti ofarlega í huga barnaþingmanna

#barnaþingmanna#jafnrétti#ofarlega#huga
Starmer sees off Mandelson inquiry call - but he doesn't escape unscathed
📅 28.04.2026 21:54:08 👁️ 1

Starmer sees off Mandelson inquiry call - but he doesn't escape unscathed

#mandelson#unscathed#starmer#inquiry#escape
Reform challenges parties to publish costings in Senedd election debate
📅 28.04.2026 21:42:45 👁️ 1

Reform challenges parties to publish costings in Senedd election debate

#challenges#costings#election#parties#publish
Horfir til betri vegar eftir „ófremdarástand“ í samgöngum til Vestmannaeyja
📅 28.04.2026 21:40:49 👁️ 1

Horfir til betri vegar eftir „ófremdarástand“ í samgöngum til Vestmannaeyja

#ófremdarástand#vestmannaeyja#samgöngum#horfir#betri
Vilja að vændiskaupendur séu nafngreindir og fái bréf heim
📅 28.04.2026 21:27:25 👁️ 1

Vilja að vændiskaupendur séu nafngreindir og fái bréf heim

#vændiskaupendur#nafngreindir#vilja#bréf#heim
Vilja að vændiskaupendur verði nafngreindir og fái bréf heim
📅 28.04.2026 21:27:25 👁️ 1

Vilja að vændiskaupendur verði nafngreindir og fái bréf heim

#vændiskaupendur#nafngreindir#vilja#verði#bréf
Hita­veitur gætu orðið veru­leiki á Græn­landi - Vísir
📅 28.04.2026 21:20:48 👁️ 1

Hita­veitur gætu orðið veru­leiki á Græn­landi - Vísir

#hitaveitur#veruleiki#grænlandi#orðið#vísir
Five takeaways from the King's historic address to US Congress
📅 28.04.2026 21:17:18 👁️ 1

Five takeaways from the King's historic address to US Congress

#takeaways#historic#congress#address#five
Oddvitaumræður í Garðabæ
📅 28.04.2026 21:10:10 👁️ 1

Oddvitaumræður í Garðabæ

#oddvitaumræður#garðabæ
Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey
📅 28.04.2026 21:03:19 👁️ 1

Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey

#hendur#önnur#ákæra#gefin#james
„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“ - Vísir
📅 28.04.2026 21:01:48 👁️ 1

„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“ - Vísir

#ekkert#hvenær#komast#aftur#vísir
Mikilvægt að tryggja framboð af húsnæði með viðráðanlega leigu
📅 28.04.2026 20:46:09 👁️ 1

Mikilvægt að tryggja framboð af húsnæði með viðráðanlega leigu

#viðráðanlega#mikilvægt#tryggja#framboð#húsnæði
Bó kvaddur í hinsta sinn - Vísir
📅 28.04.2026 20:38:43 👁️ 1

Bó kvaddur í hinsta sinn - Vísir

#kvaddur#hinsta#vísir#sinn
Tjaldapar með hreiður við hverinn á Laugarvatni
📅 28.04.2026 20:15:17 👁️ 1

Tjaldapar með hreiður við hverinn á Laugarvatni

#laugarvatni#tjaldapar#hreiður#hverinn
Rauða hverfi Reykjavíkur
📅 28.04.2026 20:15:10 👁️ 2

Rauða hverfi Reykjavíkur

#reykjavíkur#hverfi#rauða
Verðlagseftirlitið afturhvarf til fortíðar
📅 28.04.2026 19:34:18 👁️ 1

Verðlagseftirlitið afturhvarf til fortíðar

#verðlagseftirlitið#afturhvarf#fortíðar
Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður - Vísir
📅 28.04.2026 19:29:13 👁️ 1

Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður - Vísir

#bátsferðir#flugferða#fjölgun#felldar#niður
Fella niður bátsferðir en fjölga flug­ferðum - Vísir
📅 28.04.2026 19:29:13 👁️ 1

Fella niður bátsferðir en fjölga flug­ferðum - Vísir

#bátsferðir#flugferðum#fjölga#fella#niður
Gervigreind hjálpar en kemur ekki í staðinn fyrir starfsmenn sem eru látnir fara
📅 28.04.2026 19:13:20 👁️ 1

Gervigreind hjálpar en kemur ekki í staðinn fyrir starfsmenn sem eru látnir fara

#gervigreind#starfsmenn#hjálpar#staðinn#látnir
Vændi á Íslandi — „Teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi“
📅 28.04.2026 19:00:18 👁️ 1

Vændi á Íslandi — „Teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi“

#meirihlutinn#skipulögð#starfsemi#íslandi#teljum
Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum - DV
📅 28.04.2026 19:00:04 👁️ 1

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum - DV

#barnaníðsteiknimyndum#almannafæri#lostugt#vörslur#athæfi
Telur orkukrísuna undirstrika nauðsyn þess að hætta notkun jarðefnaeldsneytis
📅 28.04.2026 18:49:18 👁️ 1

Telur orkukrísuna undirstrika nauðsyn þess að hætta notkun jarðefnaeldsneytis

#jarðefnaeldsneytis#orkukrísuna#undirstrika#nauðsyn#notkun
FCC to review Disney broadcast licenses after Jimmy Kimmel joke about Melania Trump
📅 28.04.2026 18:49:15 👁️ 1

FCC to review Disney broadcast licenses after Jimmy Kimmel joke about Melania Trump

#broadcast#licenses#melania#review#disney
MPs vote against inquiry into Starmer's claims on Mandelson vetting
📅 28.04.2026 18:48:48 👁️ 3

MPs vote against inquiry into Starmer's claims on Mandelson vetting

#mandelson#against#inquiry#starmer#vetting
Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir á­tök - Vísir
📅 28.04.2026 18:48:34 👁️ 1

Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir á­tök - Vísir

#pílagrímaflug#atlanta#fullri#þrátt#fyrir
US soldier accused of betting on Maduro's removal pleads not guilty
📅 28.04.2026 18:35:10 👁️ 1

US soldier accused of betting on Maduro's removal pleads not guilty

#soldier#accused#betting#removal#maduro
Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir
📅 28.04.2026 18:31:52 👁️ 1

Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir

#húsnæðispakka#vonbrigðum#fyrir#vísir#urðu
Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag
📅 28.04.2026 18:28:04 👁️ 1

Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag

#reykjavíkur#flugferðum#fjölgað#milli#eyja
Helstu augna­blikin úr út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar - Vísir
📅 28.04.2026 18:23:08 👁️ 1

Helstu augna­blikin úr út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar - Vísir

#halldórssonar#augnablikin#björgvins#helstu#útför