„Það var vissulega leitt að koma að málningarblautum kirkjutröppum í morgun og þótt það sé sannarlega prýði af íslenska fánanum, þá gilda um hann ákveðnar reglur sem við í Grafarvogskirkju fylgjum sem og aðrar kirkjur,“ segir í Facebook-færslu Grafarvogskirkju.
„Við erum stolt af Pride fánanum í tröppunum okkar og munum á næstu dögum vinda okkur í að mála hann aftur á tröppurnar og þiggjum sannarlega hjálp frá ykkur við það.“