Gervihnötturinn er sagður fullkláraður og er búið að koma sprengjunni fyrir í honum. Í byrjun mánaðarins var viðvörunarbjöllum hringt á Vesturlöndum og sögðu vestrænar leyniþjónustur þá að honum gæti verið skotið á loft innan sextíu daga.
Þetta hafa nokkrir þýskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sínum úr vestrænum leyniþjónustum og fleirum. Sérstaklega er vísað til nýrra skýrslna innan þýska hersins og frá þarlendum leyniþjónustum þar sem vísað er í upplýsingar frá öðrum vestrænum ríkjum.
Erfitt að koma í veg fyrir sprengingu
Bandaríkjamenn voru fyrstir til að vara við því að ráðamenn í Rússlandi ætluðu sér að skjóta kjarnorkusprengju á sporbraut. Það var í febrúar árið 2023 og fengu bandarískir þingmenn þá viðvaranir frá leyniþjónustusamfélagi ríkisins um að þetta stæði til.
Leyniþjónusta bandaríska hersins (DIA) gaf í síðasta mánuði út skýrslu þar sem meðal annars er fjallað um það hvernig hægt er að nota kjarnorkusprengju til að neita öllum heiminum um aðgang að sporbraut um langt skeið.
Í skýrslunni, sem heitir „Challenges to security in space“ og finna má hér, segir að Rússar séu að þróa gervihnött sem hannaður sé til að bera kjarnorkusprengju, þrátt fyrir að slíkt brjóti gegn alþjóðasamningi um umsvif úti í geimnum sem fullgiltur var árið 1967 og Rússar eru aðilar að.
Sá samningur bannar það að setja kjarnorkuvopn á braut um jörðu.
Í desember 2024 greiddu 167 ríki atkvæði með tillögu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem snerist um að banna gereyðingarvopn á sportbraut. Sex ríki sátu hjá en fjögur greiddu atkvæði gegn tillögunni. Það voru Rússland, Kína, Íran og Norður-Kórea.
Í áðurnefndri skýrslu DIA kemur einnig fram að þegar kjarnorkusprengja er komin á braut um jörðu, sé lítið sem ekkert hægt að gera í því og erfitt sé að koma í veg fyrir að vopnið verði notað.
Scoop 🛰️☢️ Western intelligence services assess that #Russia is planning to launch a nuclear-armed satellite named „Sputnik-S“ before the end of the year. German military has briefed the government on threat to national security. Our report: https://t.co/nH8GghqVDb #Space
— Florian Flade (@FlorianFlade) November 23, 2026
Afleiðingar yrðu gífurlegar
Verði kjarnorkusprengja sprengd á sporbraut myndi sprengingin sjálf líklega granda fjölda gervihnatta, en það er háð því hvar gervihnötturinn yrði sprengdur. Sprengingin myndi valda gífurlega miklu braki sem gæti haft keðjumyndandi áhrif þannig að sífellt fleiri gervihnettir yrðu fyrir skemmdum og þar að auki gæti brak komið í veg fyrir geimskot um langt skeið.
Sprengingin myndi líka skilja eftir sig geislun sem myndi valda gervihnöttum skaða yfir tíma.
Þýsku miðlarnir sem hafa fjallað um málið í morgun hafa eftir Stephen Whiting, yfirmanni geimstjórnar Bandaríkjahers, að líklega myndi þriðjungur gervihnatta á braut um jörðu eyðileggjast strax við sprengingu kjarnorkusprengju á braut um jörðu.
Allir hinir myndu svo verða fyrir skemmdum á komandi mánuðum.
Þar að auki gæti sprengingin sjálf valdið gífurlegum truflunum og skemmdum á raforkukerfi, samskiptakerfi, bankakerfi, staðsetningarbúnaði og fjölmörgu öðru.
Burtséð frá áhrifunum á almenning, þá reiða herir Vesturlanda sig mun meira á gervihnetti en herafli Rússlands gerir.
Fyrri gervihnöttur vakti furðu
Innan vestrænna leyniþjónusta hefur verið bent á gervihnöttinn Kosmos-2553, sem skotið var á loft frá Rússlandi í febrúar 2022. Þá sögðust Rússar ætla að nota hann til að rannsaka geislun í geimnum, en það þótti sérfræðingum undarlegt.
Nú leikur á sá grunur að gervihnötturinn hafi í raun verið tilraunaskot fyrir Sputnik S. Að Kosmos-2553 hafi meðal annars verið notaður til að rannsaka áhrif geislunar á gervihnetti.
Gervihnötturinn var sendur á sporbraut í um tvö þúsund kílómetra hæð yfir jörðu, þar sem finnst mikil geislun og aðrir forðast þess vegna að senda gervihnetti þangað.
Í fyrra bárust fregnir af því að Rússar hafi líklega misst stjórn á Kosmos-2553.