Slökkviliðsmenn aðstoðuðu konu niður af Úlfarsfelli í dag. Óku slökkviliðsmennirnir upp fellið á fjórhjólum en konan hafði hlotið áverka við fjallgönguna.
Þetta segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu við mbl.is. Konan hafi verið færð í sjúkrabíl og flutt á slysadeild.
Ekki liggur fyrir hvers konar áverka konan hlaut.