Í lok árs 2023 voru 249 skráðir félagar í Golfklúbb Grindavíkur en nú eru félagsmenn orðnir 1.389 talsins.
Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur, segir í samtali við mbl.is að staðan sé frábær á golfvellinum í Grindavík og að félagsmenn komi víðar að en eingöngu úr Grindavík.
„Það eru ekki nema kannski nokkur hundruð manns sem búa í Grindavík, þannig að félagsmennirnir eru að mestu leyti fólk af höfuðborgarsvæðinu og úr nágrannasveitarfélögunum.“
Nánast fullt alla daga
Að sögn Helga hefur nýting vallarins verið mjög góð og nánast fullt alla daga.
Hann telur að markviss kynning á samfélagsmiðlum og lækkun árgjaldsins úr 90 þúsund krónum í 44.900 krónur árið 2025 hafi orðið til þess að aðsókn „sprakk“.
Ertu ekki bara ánægður með þetta?
„Þú getur rétt ímyndað þér hvað ég er ánægður með þetta,“ svarar hann í léttum dúr.
