Ljómandi vel gekk að koma steypubílnum sem hafnaði í Þjórsá í fyrradag upp úr ánni í gær.
Dregið var úr rennsli úr Sultartangalóni og vatnsmagnið þar með minnkað í ánni sem gerði starfsmönnum Ístaks auðveldara fyrir að fjarlægja bílinn. Björgunaraðilar stýrðu aðgerðum.
Steypubíllinn fór út af brúnni á mánudagskvöld og var mikill viðbúnaður við björgunaraðgerðir. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti bílstjórann á Landspítalann en hann hafði ofkælst í ánni.
Er hann nú heill á húfi heima að hvíla sig eftir áfallið.
Gekk eins og þetta átti að ganga
Hjálmur Sigurðsson, framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki, segir aðgerðina við að ná bílnum á þurrt hafa verið vel skipulagða og hún hafi gengið eins og hún átti að ganga.
Landsvirkjun hafi lækkað vatnsstöðuna í ánni og aðgerðunum hafi verið stýrt af björgunaraðilum, Ístak lagði til mann og gröfu sem notuð var í verkið.
„Það var farið með stóra 75 tonna gröfu út í ána eftir að þeir lækkuðu vatnið og það fóru tveir björgunaraðilar með gröfunni og stýrðu aðgerðum,“ segir Hjálmur.
Fyrsta skref hafi verið að rétta bílinn við á hjólin, síðan hafi tóg verið hengt í framenda bílsins og hann dreginn yfir og upp úr ánni.
„Þetta var vel skipulagt hjá björgunaraðilum, vel lagt upp og bara virkaði.“
Viðgerðum á brúnni yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi lauk seint í gærkvöldi og hefur brúin verið opnuð fyrir umferð á nýjan leik.




