Bandarísk yfirvöld hafa synjað Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, um vegabréfsáritun svo hann geti sótt Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. AFP-fréttaveitan hefur þetta eftir heimildarmanni kunnugum málinu.
Bandaríska utanríkisráðuneytið segist í yfirlýsingu ekki gefa út vegabréfsáritun fyrir nokkurn mann innan Frelsissamtaka Palestínu og í heimastjórninni, sakar hana um að hafa brugðist og ekki gert nægilegar umbætur á stjórnarháttum sínum þvert á loforð.
Aðgerðir heimastjórnarinnar dragi jafnframt úr möguleikunum á friði. Abbas var þó ekki nafngreindur þar sérstaklega. Þetta er annað árið í röð sem bandarísk yfirvöld synja Abbas um vegabréfsáritun.
Saka Palestínumenn um að sækjast eftir einhliða viðurkenningu
Í fyrra þurfti Abbas, sem er leiðtogi Fatah, því að ávarpa þingið um fjarfundabúnað en hann var áður tíður gestur á fundum þess. Utanríkisráðuneytið sakaði samtökin einnig um tilraunir til að alþjóðavæða átök Ísraelsríkis og Palestínumanna meðal annars með því að leita til Alþjóðasakamáladómstólsins og Alþjóðadómstólsins.
„Einnig með því að reyna að sniðganga samningaviðræður með því að sækjast eftir einhliða viðurkenningu Palestínuríkis, halda áfram að styrkja hryðjuverkamenn fjárhagslega og vegsama athæfi þeirra í opinberum yfirlýsingum og skólabókum.“ Alls hafa 142 ríki Sameinuðu þjóðanna viðurkennt fullveldi Palestínu.
Ofbeldi hefur færst í aukana á Vesturbakkanum
Heimastjórnin fer með takmarkaða sjálfsstjórn á hluta Vesturbakkans sem Ísraelsmenn hernámu árið 1967. Ofbeldi landtökufólks gegn Palestínumönnum þar hefur færst mjög í aukana frá því Hamas gerði hryðjuverkaárás á Ísrael 7. október 2023 og Ísraelsher hóf mannskæðar árásir á Gaza.
Hamas drápu um 1.200 manns í Ísrael og næstum 74 þúsund hafa verið drepin á Gaza, samkvæmt tölum heilbrigðisráðuneytisins þar. Sameinuðu þjóðirnar segja þær tölur nokkuð áreiðanlegar.
Alþjóðasamfélagið hefur lýst þungum áhyggjum af ofbeldinu á Vesturbakkanum en bandarísk stjórnvöld hafa lítt tjáð sig um það að öðru leyti en því að segjast andsnúin allri innlimun palestínskra landsvæða.