Vísindamenn hafa staðfest áratugagamla kenningu um að grameðla eða Tyrannosaurus rex hefði verið með heitt blóð. Þegar steingervt fótspor eðlunnar fannst í Alaska fyrir fjórum árum bættist í þekkingarbankann að hún hefði getað lifað við kaldar aðstæður, sem er á færi fæstra skriðdýra.
Ný rannsókn leiðir í ljós að grameðlan var með rúmlega 36 gráðu heitt blóð, ekki ósvipað mönnum. Blóð grameðlunnar var því óvenjuheitt fyrir skriðdýr.
Þessar niðurstöður birtust í vísindaritinu Science Advancesog byggja á rannsóknum á ísótópum í örlitlum hluta úr steingervðum glerungi tanna Thomasar T.Rex, mjög heillegrar beinagrindar grameðlu sem geymd er í Náttúruvísindasafni Los Angeles-sýslu í Bandaríkjunum.
Aðferðin, sem auðveldar að nota örsmá sýni, hefur verið í þróun í yfir áratug. Vísindamennirnir segja niðurstöðuna ekki beinlínis koma á óvart og að hún geti varpað mun skýrara ljósi á hvernig líf grameðla var fyrir 66 til 69 milljónum ára.
Heitt blóð hafi áhrif á hegðun þeirra, samskipti við önnur dýr og breytir því hversu mikla fæðu þær þurftu. Grameðla með heitt blóð gat farið hvert sem hana lysti, jafnvel á köldustu slóðir.
Rannsakendur benda á að þótt risaeðlur séu flokkaðar sem skriðdýr eigi þær sama uppruna í þróunarsögunni og fuglar. Grameðlan falli þar á milli, með heitara blóð en skriðdýr en kaldara en fuglar nútímans.