Halla Gunnarsdóttir formaður VR lýsti því yfir í ræðu sinni á baráttufundi verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi í dag að núverandi efnahagsástand gæti hæglega orðið til þess að kjarasamningar myndu losna í haust.
Sem stendur mælist verðbólga í 5,2% og ef hún mælist 4,7% eða hærri í september virkjast forsenduákvæði kjarasamninga.
Þá varaði hún einnig við því að í okkar heimshluta stæði yfir skipulagt niðurbrot á stéttarfélögum og réttindum launafólks.
„Spítalar, bókasöfn, leikhús, vegir, skólar, ekkert er heilagt þegar hugmyndafræði niðurskurðarins er annars vegar. Sumu er lokað, annað látið grotna niður,“ sagði Halla sem tók fram að þetta væri ekki vegna skorts á fjármunum þar sem nóg væri til en þeir væru markvisst færðir frá vinnandi fólki, frá þeim sem eiga lítið eða ekkert og til hinna allra ríkustu. „Milljarðamæringar heimsins eru orðnir svo ríkir að þeim finnst það sjálfum orðið vandamál,“ sagði hún
Kjarabarátta snýst ekki bara um laun
Halla minnti gesti einnig á að kjarabarátta snerist ekki bara um launin sem kæmu í vasann heldur einnig um annað sem tekið væri úr vösunum og minntist á hækkandi húsnæðiskostnað, gjaldskrárhækkanir og hækkun á matvöru sem allt hækkaði umfram verðbólgu.
„Kjarabarátta snýst líka um lífsgæði og framtíðarsýn, menntun og velsæld barnanna okkar og að við búum þeim að minnsta kosti jafngott líf og við höfum átt sjálf,“ sagði hún.
Að lokum vitnaði Halla í kvenfrelsiskonur sem kölluðu eftir því að grútmygluðum afgöngum feðraveldisins yrði varpað á haugana en Halla taldi ýmislegt annað komið yfir síðasta söludag.
„Ég segi á haugana með grútmyglaða afganga nýfrjálshyggjunnar. Á haugana með grútmyglaða efnahagsstjórn sem lætur skuldara taka skellinn en hlífir þeim sem eiga. Á haugana með allar hinar grútmygluðu tilraunir til að brjóta niður réttindi launafólks,“ sagði Halla.