Ríflega níu af hverju tíu aðspurðum í nýrri könnun í Ísrael segja að Íran hafi borið sigur úr býtum í stríðinu þar.
Yfir 3.500 manns svöruðu könnun sem hebreski háskólinn í Jerúsalem gerði dagana 17.–20 júní og niðurstöðurnar voru afgerandi. Meira að segja meðal stuðningsmanna hægristjórnar Benjamíns Netanjahús voru yfir 93% á því að Íran hefði unnið, 83% sögðu stríðið hafa veikt varnir Ísraels, 72,5% sögðust ekki trúa Netanjahú þegar hann fullyrti að helstu markmiðum hefði verið náð og 56% gáfu honum sjálfum falleinkum fyrir framgöngu sína.
Það vekur athygli að 48 prósent sögðust samt styðja áframhaldandi hernaðaraðgerðir gegn Hezbollah í Beirút, jafnvel þótt það vekti reiði Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. 21% var því andsnúið.
Könnun CBS og Yougov í Bandaríkjunum, sem birt var í gær, bendir til þess að það sé ekki mikið meiri ánægja með stríðið þar. 78% vildu að því lyki nú og 69% töldu að Bandaríkjunum hefði ekki tekist að rústa kjarnorkuþróun Írana.
74% töldu að aðstæður almennings í Íran hefður ekki batnað, 37% töldu friðarsamkomulagið betra fyrir Íran og 22% fyrir Bandaríkin.
Tveir þriðju hlutar töldu stríðið ekki hafa verið fórnanna virði fyrir Bandaríkin. Meira að segja hörðustu MAGA-Repúblikanar sem hafa haldið tryggð við Donald Trump reyndust neikvæðir í afstöðu sinni.