Bandarískur maður sem tilheyrir alþjóðlega ofbeldishópnum 764 var í dag dæmdur í 77 ára fangelsi fyrir ítrekuð og alvarleg brot gegn ungum stúlkum á netinu. Móðir íslenskrar stúlku sem varð fyrir barðinu á hópnum segir dóminn mikilvægan áfanga í afar stóru máli.
Hópurinn herjar á börn á aldrinum átta til sautján ára á netinu, nær þeim á sitt vald og kúgar þau til ofbeldisverka og sjálfsskaða. Á meðal þolenda er íslensk stúlka sem var til að mynda þvinguð til að skaða sig í beinu streymi á netinu. Hópurinn stjórnaði lífi hennar og hélt henni í heljargreipum í rúm þrjú ár.
Beitti ungar stúlkur grófu ofbeldi á netinu
Kyle Spitze, félagi í hópnum, var í gær sakfelldur fyrir dómstól í Tennessee fyrir að hafa beitt ungar stúlkur grófu ofbeldi á netinu.
Dómur yfir honum var kveðinn upp í dag. Samkvæmt dómsgögnum féllust verjendur hans og saksóknarar fallist á að refsingin yrði frá 30 ára fangelsi upp í lífstíðarfangelsi. Niðurstaðan var 77 ár.
Rétt að hann fái að dúsa í lélegu fangelsi
Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, móðir íslensku stúlkunnar, er ánægð með niðurstöðu dómstóla.
„Mér finnst réttast að hann fái bara að dúsa í einhverju lélegu fangelsi þar sem að hann fær að upplifa hrylling.“
Bandaríska alríkislögreglan FBI rannsakar glæpahópinn ásamt Interpol. Gerendurnir í málinu eru margir og rannsóknin umfangsmikil. Katrín segir að enn eigi eftir að hafa hendur í hári þess geranda sem hafði sig mest í frammi gegn dóttur hennar og því sé málinu langt í frá lokið.
„Ég er einmitt að bíða eftir tengiliðaupplýsingum frá FBI til að sjá hvort þau fundu sannanir sem tengjast dóttur minni en ég hef sjálf sannanir hérna heima. Þetta er svo flókið þar sem þetta er stórt og mikið batterí,“ segir Katrín.
Hún segir fórnarlömb 764-hópsins fjölmörg. Þá hafi glæpirnir haft hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir þolendur og fjölskyldur þeirra, bæði á Íslandi og annars staðar.
„Eins bara öll þau börn sem ég veit af erlendis. Þetta eru börn sem eru öll virkilega brotin eftir þetta. Það er mjög ólíklegt að stór hópur af þessum börnum eigi góða framtíð.“