Andleg líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna er umtalsvert verri en líðan annarra hópa. Ófaglærðir leikskólastarfsmenn eru einnig í verri fjárhagsstöðu en launafólk í öðrum starfsgreinum.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Vörðu, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem kynnt var í dag. Könnunin, sem var lögð fyrir í júní 2025, lýsir fjárhagsstöðu ófaglærðs starfsfólks í leik- og grunnskólum, stöðu þess á húsnæðismarkaði, sem og andlegri og líkamlegri heilsu þess.
Tæplega helmingur má ekki við óvæntum útgjöldum
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eiga fjórir af hverjum tíu ófaglærðum leikskólastarfsmönnum erfitt með að ná endum saman. Það sama á við um þriðjung grunnskólastarfsmanna, en hlutfallið er hins vegar 30% hjá öðru launafólki.
Þá kveðst tæplega helmingur leikskólastarfsmanna, eða 49%, ekki geta mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. Hið sama gildir um 37% grunnskólastarfsmanna og 30% annars launafólks.
Skuldastaða starfsmanna leik- og grunnskóla verri en annarra
Spurt var um skuldastöðu launafólks í könnuninni. Niðurstöður hennar benda til þess að hærra hlutfall þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum sé með yfirdrátt og skammtímalán í samanburði við annað launafólk.
Þá á starfsfólk á leikskólum síður húsnæði (57%), bæði í samanburði við starfsfólk grunnskóla (64%) og annað launafólk (64%). Að sama skapi er hærra hlutfall leikskólastarfsfólks á almennum leigumarkaði, í leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna leigusamtaka og hjá foreldrum eða ættingjum.
Andleg heilsa mælist umtalsvert verri
Í samanburði við aðra hópa mælist hlutfall þeirra sem búa við slæma andlega heilsu hæst á meðal ófaglærðra starfsmanna leikskóla, eða 38% á móti 23% grunnskólastarfsmanna og 29% hjá öðru launafólki.
Sérstaklega hátt hlutfall (28%) segist upplifa þreytu og orkuleysi alla daga og tæplega fimmtungur (18%) á í erfiðleikum með svefn nánast daglega.
Þar að auki finnur ríflega einn af hverjum tíu nánast daglega fyrir áhugaleysi, lystarleysi eða ofáti, einbeitingarskorti eða líður illa með sjálfan sig.