Í dag eru 40 ár frá Tsjornobyl-slysinu þegar einn ofnanna í Tsjornobyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu sprakk. Kjarnorkuslysið er eitt það versta sinnar tegundar í heiminum. Mannleg mistök við öryggisprófun urðu til þess að kjarnaofn fjögur sprakk og gífurlegt magn geislavirkra efna barst út í andrúmsloftið. Eldur logaði í kjarnorkuofninum í 10 daga.
Úkraína tilheyrði Sovétríkjunum þegar slysið varð. Fyrst um sinn neituðu sovéskir embættismenn að slys hefði orðið í kjarnorkuverinu. Þegar geislun fór að mælast í nágrannalöndum varð ljóst að slysið var mun alvarlegra en stjórnvöld höfðu greint frá.
Talið er að kjarnorkuslysið hafi valdið dauða fjögur til hundrað þúsund manns, beint eða óbeint. Að minnsta kosti 600 þúsund tóku þátt í hreinsunarstarfi og urðu fyrir mikilli geislun.
Um 2.200 ferkílómetrar landsvæðis í Úkraínu og um 2.600 í Suður-Belarús voru úrskurðaðir óbyggilegir vegna geislavirkni eftir slysið. Ekki er talið óhætt fyrir nokkra manneskju að búa þar næstu 24 þúsund árin.
Íbúum í borginni Pripjat var gert að yfirgefa borgina í skyndi þegar kjarnorkuslysið varð og enginn fékk að snúa aftur heim. Um 48 þúsund bjuggu í borginni, sem er aðeins þrjá kílómetra frá Tsjornobyl-kjarnorkuverinu. Borgin er ekki annað en draugaborg og minnisvarði um stærsta kjarnorkuslys sögunnar.
Nýverið var fjallað ítarlega um Tsjornobyl-slysið í Heimskviðum.