Athöfnin fór fram í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi í morgun en þar eru Brunavarnir Árnessýslu með höfuðstöðvar sínar.
Útskriftarnemendurnir voru allir í sínu fínasta pússi enda 17. júní. Fjölmenni mætti við athöfnina en þeir sem voru að útskrifast úr grunnáminu fengu nældan silfurlitaðan skjöld í sig og þeir sem útskrifuðust úr atvinnu slökkviliðsnáminu fengu afhenta svokallaða öxi, sem var búið að merkja þeim.
„Þetta er stærsti hópurinn sem við höfum útskrifað til þessa, glæsilegur hópur sem dreifist um alla sýsluna okkar,” segir Lárus Kristinn Guðmundsson varaslökkviliðsstjóri,
En af hverju þessi mikli áhugi á að vera slökkviliðsmaður?
Ég held að það sé bara svo gaman að vera slökkviliðsmaður í þessu glæsilega slökkviliði sem við eigum hér í Árnessýslu og fólk vill vera hjá okkur. Við eigum sem sagt í dag 160 slökkviliðsmenn og við erum með sjö slökkviliðsstöðvar í dag og erum að byggja þá áttundu,” segir Lárus og bætir við.
„Þetta er hópur sem er búinn að standa sig gífurlega vel og búinn að fara í mikla og erfiða þjálfun, mikla síu og við höfum reynt ýmislegt á þau en þau hafa farið í gegnum þetta allt með bros á vör.
Fjórar konur útskrifuðust úr grunnnáminu en konum fjölgar alltaf smátt og smátt í slökkviliðum landsins.
„Ég fór í þetta af því að það er að koma ný björgunarmiðstöð upp á Borg og slökkviliðsstöð þar þannig að ég ákvað að skrá mig til að vera á þeirri stöð,” segir Antonía Helga Guðmundsdóttir.
„Já, það er líka á Flúðum, þetta er mjög spennandi,” segir Kristín Sóldís Ólafsdóttir.
Nýja starfið leggst vel í þær báðar og segjast þær vilja sjá enn fleiri konur í slökkviliðum landsins.