Tuttugu manns hefur verið sagt upp störfum í fiskvinnslu fyrirtækisins Premium of Iceland í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins sem birt var á vef Víkurfrétta.
Þar kemur jafnframt fram að þrjátíu og átta manns hafi starfað hjá fyrirtækinu í upphafi árs en að starfsfólki hafi raunar þegar fækkað fyrir uppsagnirnar vegna aðgerða heilbrigðiseftirlits.
Fyrr í mánuðinum staðfesti úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að leggja fimmtíu þúsund króna dagsektir á fyrirtækið þar til starfsemi í fiskvinnslunni hefði verið stöðvuð. Var það vegna umsagnar skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um að fiskvinnsla að Brekkustíg 22-24 samræmdist ekki aðalskipulagi.
Gæti haft áhrif á fleiri fyrirtæki
Fyrirtækið bendir þó á að fiskvinnsla sé skráningarskyld og þar sem húsnæðið sé skráð sem iðnaðarhúsnæði uppfylli það viðeigandi skilyrði í reglugerð sem nær til starfsemi fiskvinnslu.
„Við hörmum þessa stöðu. Hér hefur fiskur verið unninn í áratugi, í húsi sem var byggt fyrir fiskvinnslu, og okkur er gert að loka á grundvelli skilyrðis sem hvergi stendur í reglugerðinni,“ er haft eftir Gylfa Þór Markússyni, framkvæmdastjóra Premium of Iceland, í tilkynningunni.
Í tilkynningu Premium of Iceland er því enn fremur velt upp að sú túlkun heilbrigðiseftirlitsins sem leiddi til lokunar fiskvinnslunnar gæti haft áhrif á fleiri fyrirtæki. Þar segir að á fundi Premium of Iceland með heilbrigðiseftirlitinu hafi komið fram að túlkunin snúi að 74 fyrirtækjum á svæðinu.
„Flest standa þau á strandlengjunni frá Vatnsnesi að Njarðvíkurhöfn: gróin atvinnustarfsemi á svæði þar sem breytt landnotkun hefur verið boðuð en ekkert deiliskipulag gert,“ segir í tilkynningunni og bent á að hjá þremur þeirra fyrirtækja starfi um 130 manns.
„Fái sú túlkun að standa sem beitt var gegn félaginu, að atvinnustarfsemi fáist ekki skráð á svæðinu fyrr en deiliskipulag liggur fyrir, á hún við um þau öll.“