Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga

Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga

Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga

Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Fréttastofa hefur undir höndum gögn sem sýna fram á þetta.

Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað 2023 en varð gjaldþrota 2025.

Einn ársreikningur liggur fyrir og er hann fyrir 2023. Þá var félagið með fjögurra milljóna króna rekstrartekjur, allt vegna sendlavinnu fyrir Wolt samkvæmt því sem eigandinn segir sjálfur. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins.

Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála. Þeir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki og að laun þeirra hafi verið lækkuð um helming á árinu.

Fjallað er um Wolt-málið í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:

ASÍ segir illa ganga að tala við Wolt

Stór hluti umræðunnar um Wolt hefur snúist um að sendlarnir stundi gerviverktöku fyrir heimsendingarfyrirtækið. Í einhverjum tilfellum getur gerviverktaka snúist um að það fólk sem vinnur fyrir fyrirtæki fái greiddar verktakagreiðslur persónulega þrátt fyrir að vinnusambandið sé í reynd eins og samband atvinnurekanda og launþega.

Wolt er stórt fyrirtæki á Íslandi með um 1000 sendla á sínum snærum. Samhliða þessum fréttaflutningi kemur fram í ársreikningi Wolt fyrir 2025 að fyrirtækið tvöfaldaði tekjur sínar í fyrra upp í rúmlega 1200 milljónir og skilaði rúmlega 100 milljóna króna hagnaði. Wolt á Íslandi er hluti af alþjóðlegri samstæðu Wolt sem er í eigu bandaríska fyrirtækisins Doordash Inc. sem skráð er á markað þar í landi.

Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir er lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands. Hún segir að Alþýðusambandið líti svo á að Wolt stundi gerviverktöku og að fyrirtækið greiði laun sem eru undir kjarasamningsbundnum lágmarkslaunum. Hún segir mörg stéttarfélög á Norðurlöndunum standa í stappi við Wolt. „Það er að verða ein og hálf vika síðan stærstu stéttarfélögin á Norðurlöndum hreinlega sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu út af Wolt af því að þeir eru í sérstöðu í viðskiptaháttum þegar kemur að því að óska ekki eftir kjarasamningum og fylgja dómsniðurstöðum.“

Notaði debetkort fyrirtækisins og fleiri fengu laun þangað

Alþýðusambandið hefur gagnrýnt að sendlarnir séu verktakar hjá Wolt. Þá fá þeir greidd verktakalaun á eigin kennitölu og þurfa að standa skil á sköttum og launatengdum gjöldum sjálfir. Ef starfsmennirnir standa ekki skil á þessum greiðslum til Skattsins er hægt að krefja þá persónulega.

Öðru máli gegnir hins vegar um það ef verktakagreiðslurnar frá Wolt renna inn í einkahlutafélag eins og einhver dæmi eru um. Þá þarf einkahlutafélagið að greiða skatta til hins opinbera en skatturinn hefur ekki sömu úrræði til að sækja peningana til viðkomandi eins og þegar greitt er beint til viðkomandi.

Karen segist ekki áður hafa heyrt af því að Wolt-sendlar hafi notað einkahlutafélög til að fá greitt fyrir vinnu sína.

Í skýrslu yfir eiganda umrædds einkahlutafélags, sem fréttastofa hefur undir höndum, kemur fram að maðurinn hafi einnig haft milligöngu um það að greiða öðrum sendlum hjá Wolt fyrir vinnu þeirra fyrir fyrirtækið. Orðrétt segir í þessari skýrslutöku yfir manninum hjá skiptastjóra þrotabús fyrirtækisins: „Ég vann fyrir Wolt um hríð, í svona eitt ár, og fóru greiðslurnar í gegnum fyrirtækið. Svo á ég vini sem unnu fyrir Wolt og þeir notuðu bankareikning félagsins.“

Þegar maðurinn var spurður að því í skýrslutökunni af hverju hann héldi að fyrirtækið hefði farið í þrot sagði hann það hafa gerst af því að Wolt blokkaði aðgang hans að kerfinu sem gerði honum kleift að keyra með sendingar fyrir fyrirtækið. Eftir þetta hefði ekki verið mikill tilgangur með einkahlutafélaginu. Hann sagði í skýrslutökunni að fyrirtækið hefði ekki skuldað neinum nema skattayfirvöldum svo hann vissi til og að félagið hefði ekki átt neinar eignir.

Svo sagði maðurinn að hann hefði stundum bara notað debetkort félagsins beint í stað þess að greiða launin inn á persónulegan bankareikning sinn. „Endurskoðandinn minn reiknaði út fyrir mig hversu háa upphæð ég átti að fá í laun og stundum notaði ég bara debetkort félagsins.“

Maðurinn sagði jafnframt í skýrslutökunni að hann hefði verið eini starfsmaður félagsins. Samt voru einhverjir fleiri sendlar hjá Wolt sem fengu greidd laun inn á reikninga þess. Lítil skil virðast hins vegar hafa verið á bankareikningi fyrirtækisins og mannsins sjálfs þrátt fyrir að það væri sjálfstæður lögaðili og þrátt fyrir að fleiri en maðurinn hefðu fengið verktakagreiðslur þangað inn. Þetta sést ágætlega á þeirri staðreynd að maðurinn notaði debetkort einkahlutafélagsins eins og það væri hans eigið.

Tekið skal fram að ekki er ólöglegt að nota einkahlutafélag með þessum hætti sem hér um ræðir. Maðurinn sem vann hjá Wolt og átti einkahlutafélagið vissi hins vegar ekki mikið um slíkan rekstur, samkvæmt skýrslunni.

Hann er af erlendu bergi brotinn og var 24 ára þegar einkahlutafélagið var stofnað. Hann treysti á bókara til að reka félagið fyrir sig. Eitt af því sem kemur fram er að maðurinn hafi ekki sjálfur greitt skatta af rekstri félagsins og að hann hafi ekki borgað stofnkostnað fyrirtækisins upp á 500 þúsund krónur áður en það fór í þrot.

Saga þessa einkahlutafélags sýnir hversu mikill frumskógur þessi sendlabransi er á Íslandi og hversu lítið regluverk er í kringum hann. Afar sjaldgæft er að einstaklingar sem vinna í daglaunavinnu í láglaunastörfum á Íslandi fái greitt í gegnum einkahlutafélag.

Segir fólki í Svíþjóð meira sama núna

Pontus Blume er Svíi sem skrifar doktorsritgerð við Háskólann í Stokkhólmi um Wolt og önnur sambærileg giggfyrirtæki. Hann hefur verið til viðtals um Wolt í sænskum fjölmiðlum og starfar líka fyrir stéttarfélag sendla sem hefur sótt launamál gegn Wolt. Pontus segir að umræðan um Wolt sé svipuð í flestum löndum.

Hann segir að það sem hafi gerst sé að Wolt hafi upphaflega verið með sendla á sínum snærum sem voru verktakar eða með einhverjum hætti sjálfstæðir starfsmenn og ekki fastráðnir launþegar. Sænskir dómstólar komust að því að þetta fyrirkomulag braut gegn lögum og reglum og skikkuðu Wolt til að vera bara með fastráðna starfsmenn. Í stað þess að ráða starfsmennina sjálfir hafi fyrirtækið hins vegar breytt viðskiptalíkaninu sínu og losað sig undan þeirri ábyrgð að vera með sendlana sem launþega í vinnu. Þess vegna kom starfsmannaleiga inn sem milliliður.

Pontus Blume segir að verkalýðsfélagið sem hann starfar hjá hafi stefnt Wolt í Svíþjóð í fyrra í september vegna sendils sem hafði fengið 12 til 13 þúsund sænskar krónur, eða um 150 til 160 þúsund íslenskar krónur, á mánuði fyrir fulla vinnu hjá fyrirtækinu. Pontus segir að maðurinn hafi fengið minna en helming af því sem hann hafi átt að fá samkvæmt þarlendum kjarasamningum.

Það sem hafi breyst í Svíþjóð á liðnum árum sé að fólki þar í landi sé orðið meira sama um umræðuna um Wolt. Fyrst eftir að Wolt kom til Svíþjóðar, á meðan á covid-faraldrinum stóð og fólk fór að nota Wolt meira, hafi verið meiri umræða um kjör sendlanna. Þetta hafi svo breyst og segir hann að lítil umræða sé um fyrirtækið í meginstraumsfjölmiðlum. Umræðan sé fyrst og fremst í vinstri sinnuðum miðlum.

Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt, vildi ekki veita Þetta helst viðtal þegar eftir því var leitað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hann vísar í yfirlýsingu sem Wolt sendi frá sér í síðustu viku.

#greidd #laun #málið #sendlar #wolt


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-23-wolt-malid-sendlar-fa-greidd-laun-til-einkahlutafelaga-487759

📰 Aðrar fréttir

Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael
📅 08.11.2026 👁️ 0
Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael
Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael Fréttin8. nóvember 2026InnlendarLeave a Comment Hassan Divband, Hamid...
Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa
📅 08.11.2026 👁️ 1
Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa
Í upphafi forsætisráðherraferils Davíðs Oddssonar urðu miklar umbætur og framfarir hér á landi. Má þar nefna upplýsingalög og stjórnsýslulög, auk þess...
Björgunar­sveitir kallaðar út vegna bíls í á - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Björgunar­sveitir kallaðar út vegna bíls í á - Vísir
Björgunarsveitir og lögregla voru kölluð út í morgun vegna bíls sem fór út í á á Snæfellsnesi. Viðbragsaðilar eru á vettvangi.
Hönnun nýs þyngdarstjórnunarlyfs byggir á rannsóknum á erfðaefni Íslendinga
📅 08.11.2026 👁️ 1
Hönnun nýs þyngdarstjórnunarlyfs byggir á rannsóknum á erfðaefni Íslendinga
Þróun nýs megrunarlyfs bandaríska lyfjafyrirtækisins Amgen byggir á rannsóknum vísindamanna deCode á erfðaefni nærri tvö hundruð þúsund Íslendinga. Bl...
Vinted and eBay could be included in under-16 social media ban, minister says
📅 08.11.2026 👁️ 1
Vinted and eBay could be included in under-16 social media ban, minister says
The culture secretary confirms reports they could be in the list of platforms set to be banned next March.
Þriðjungur ber lítið traust til stjórnar Lands­virkjunar - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Þriðjungur ber lítið traust til stjórnar Lands­virkjunar - Vísir
Þetta eru niðurstöður könnunar Maskínu sem unnin var fyrir Sprengisand á Bylgjunni. Líkt og fram hefur komið hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd A...
„Þetta er náttúru­lega eins og blaut tuska“ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
„Þetta er náttúru­lega eins og blaut tuska“ - Vísir
Ólafía Hrönn, sem valin var leikkona ársins á Íslensku sjónvarpsverðlaununum fyrir Svörtu sanda II, hefur að undanförnu verið að þvælast um landið ása...
Virkjanir og virðisauki
📅 08.11.2026 👁️ 1
Virkjanir og virðisauki
Virkjanir og virðisauki Tilraun Við­skipta­ráðs til að styðja til­lögu sína efna­hags­legum rökum er blekk­ing ein. Skýrsla Við­skipta­ráðs „Kraftur í...
Lúðvík hjólar í Ólaf Ragnar – „Gagnrýni á höfundinn er aldrei bara gagnrýni. Hún er móðgun við embættið“
📅 08.11.2026 👁️ 1
Lúðvík hjólar í Ólaf Ragnar – „Gagnrýni á höfundinn er aldrei bara gagnrýni. Hún er móðgun við embættið“
Lúðvík Bergvinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingar, sparar ekki stóru orðin í nýrri grein um Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrvera...
Sæmi Rokk er látinn
📅 08.11.2026 👁️ 1
Sæmi Rokk er látinn
Sæmi Rokk, sem áður hét Sæmundur Pálsson, er látinn, 90 ára að aldri.Valgarður Guðjónsson, tónlistarmaður í Fræbblunum, greinir frá þessu í færslu á s...
Sprengi­sandur: Ný könnun um traust til stjórnar Lands­virkjunar - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Sprengi­sandur: Ný könnun um traust til stjórnar Lands­virkjunar - Vísir
Í þættinum verður líka ítarlegt viðtal við Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Þá ræðir Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræð...
Skýtur á Mið­flokkinn fyrir að styðja ekki brottvísunarfrumvarp - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Skýtur á Mið­flokkinn fyrir að styðja ekki brottvísunarfrumvarp - Vísir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir sömuleiðis stjórnarandstöðuna fyrir að hafa ekki stutt breytingarnar og segir sérstaklega...
Sæmi Rokk fallinn frá - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Sæmi Rokk fallinn frá - Vísir
Valgarður Guðjónsson tónlistarmaður greinir frá andláti Sæma Rokk í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann Sæma hafa kvatt í gærmorgun, hann hafi ve...
Ráð­herrum ráð­lagt að halda sig frá Tinder - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Ráð­herrum ráð­lagt að halda sig frá Tinder - Vísir
Ástæðan er hætta á að erlendar leyniþjónustur eða aðrir óprúttnir aðilar nýti forritin til að komast í samband við stjórnmálamenn og koma þeim í viðkv...
Poland: How the deadly shooting in Krakow unfolded
📅 08.11.2026 👁️ 1
Poland: How the deadly shooting in Krakow unfolded
Video authenticated by BBC Verify shows the moment gunshots rang out in Krakow's main market square.
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Raunir harða hægrisins
📅 08.11.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Raunir harða hægrisins
Mynd Pistlahöfundur skannar reglulega netmiðla landsin
„Pabbi vildi ekki vera þarna“ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
„Pabbi vildi ekki vera þarna“ - Vísir
Þetta segir Ásta Kristín, dóttir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Hún rifjar upp síðustu jól og...
Arabaflokkur styðji stjórn Eisenkots - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Arabaflokkur styðji stjórn Eisenkots - Vísir
Ísak Herzog forseti Ísrael veitti í gærkvöldi Gadi Eisenkot umboð til ríkisstjórnarmyndunar. Háttsettur maður innan flokksins segir þetta gert til að ...
Foreldrar og systir árásarmannsins fundust látin
📅 08.11.2026 👁️ 2
Foreldrar og systir árásarmannsins fundust látin
Lögreglan í Póllandi hefur staðfest að fólkið sem fannst látið á heimili byssumannsins sem stóð að skotárásinni á aðaltorginu í Kraká í gær voru forel...
43 grindhvalir drápust á afskekktri strönd
📅 08.11.2026 👁️ 2
43 grindhvalir drápust á afskekktri strönd
43 grindhvalir drápust eftir að hafa strandað á austurströnd Nýja-Sjálands á föstudag. Hvalirnir strönduðu á Ngawi-strönd sem er afskekkt strönd á suð...
Maðurinn sem hagnast hefur um milljarða á friðarviðræðum
📅 08.11.2026 👁️ 1
Maðurinn sem hagnast hefur um milljarða á friðarviðræðum
Í augum Jareds Kushner er það hið eðlilegasta mál að einhverjir valdamestu stjórnmálamenn heims séu gestkomandi á heimili hans.Forsetahjónin Bill og H...
SUNDAY WEATHER: Storm Bruna bringing heavy rain and strong winds to the Canary Islands
📅 08.11.2026 👁️ 2
SUNDAY WEATHER: Storm Bruna bringing heavy rain and strong winds to the Canary Islands
Storm Bruna is bringing a wet and windy Sunday to the Canary Islands, with heavy rain, thunderstorms and rough seas expected as a weather front moves ...
Eitt er að lofa, annað að efna
📅 08.11.2026 👁️ 2
Eitt er að lofa, annað að efna
Eitt er að lofa, annað að efna Flestir leið­togar vildu draga úr svína­eldi til útflutn­ings, en útflutn­ingur á grísum hefur aldrei verið meiri. Hlus...
Líkin af for­eldrum mannsins og systur - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Líkin af for­eldrum mannsins og systur - Vísir
Maðurinn hafi haft löglegt skotvopnaleyfi og ekki áður komið við sögu lögreglu. Sex létust í skotárás á aðaltorgi Krakár í gær og sextán særðust. Tvei...
Manstu eftir Broadway?
📅 08.11.2026 👁️ 1
Manstu eftir Broadway?
Skemmtistaðurinn Broadway var opnaður við Álfabakka í Mjódd í Reykjavík 26. nóvember 1981.Broadway var vinsæll samkomustaður um árabil, sérstaklega um...
Víða rigning en styttir upp með deginum norðvestantil
📅 08.11.2026 👁️ 2
Víða rigning en styttir upp með deginum norðvestantil
Draga á úr vindi sem gengið hefur yfir landið í nótt með morgninum, fyrst norðvestantil. Úrkoma færist hægt og rólega austur og styttir upp í höfuðbor...
Lífsháski breytti sýn hans á lífið
📅 08.11.2026 👁️ 2
Lífsháski breytti sýn hans á lífið
Litla-Hraun er elsta starfandi fangelsið á Íslandi og um leið það stærsta. Á sama tíma og boðunarlistar lengjast þá tekst stór hluti fanga á við fíkni...
Man detained for shining laser pointer at pilots in Fuerteventura
📅 08.11.2026 👁️ 1
Man detained for shining laser pointer at pilots in Fuerteventura
A young man, believed to be in his early 20s, has been reported to the authorities after allegedly shining a laser at aircraft taking off from Fuertev...
Lægir með deginum - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Lægir með deginum - Vísir
Úrkomusvæðið færist ögn austar og styttir því upp á norðvestanverðu landinu með deginum, að því er veðurfræðingur Veðurstofunnar segir í hugleiðingum ...
Rotaðist eftir líkams­á­rás - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Rotaðist eftir líkams­á­rás - Vísir
Meintir gerendur voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Annar þeirra var vistaður í fangageymslu en hinum var sleppt að lokinni skýrslutöku. ...
25-year-old pedestrian dies after being hit by a car in Playa del Inglés
📅 08.11.2026 👁️ 2
25-year-old pedestrian dies after being hit by a car in Playa del Inglés
A 25-year-old man has died after being hit by a vehicle on Avenida de Italia in Playa del Inglés, in the south of Gran Canaria.The incident happened a...
Deilt um uppgjör Covid-faraldursins á síðum Morgunblaðsins
📅 08.11.2026 👁️ 2
Deilt um uppgjör Covid-faraldursins á síðum Morgunblaðsins
Ritdeila um hvernig Ísland kom út úr covid-faraldrinum hefur birst í Morgunblaðinu. Karl G. Kristinsson telur alþjóðleg gögn sýna góðan árangur Ísland...
Performance and latency optimisation for mobile Aviator casino Apps
📅 08.11.2026 👁️ 2
Performance and latency optimisation for mobile Aviator casino Apps
In intense, live crash gaming, split-second moments matter most. A game round can go from gradually increasing multipliers to a sudden and drastic cra...
Handtekinn tvisvar sinnum sama kvöld
📅 08.11.2026 👁️ 1
Handtekinn tvisvar sinnum sama kvöld
Maður var handtekinn tvisvar sinnum í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hann hafi verið han...
Krakkatía vikunnar: Icegu­ys, leti­dýr og aftur­göngur - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Icegu­ys, leti­dýr og aftur­göngur - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Ungur maður grunaður um að hafa skilið vinkonu sína eftir á fjalli
📅 08.11.2026 👁️ 2
Ungur maður grunaður um að hafa skilið vinkonu sína eftir á fjalli
Tuttugu og eins árs gamall Þjóðverji er grunaður um að hafa stofnað lífi 17 ára vinkonu sinnar í hættu þegar hann yfirgaf hana í fjallgöngu á hæsta fj...
24 slösuðust í jarðskjálfta
📅 08.11.2026 👁️ 3
24 slösuðust í jarðskjálfta
Að minnsta kosti tuttugu og fjórir slösuðust í jarðskjálfta sem varð í Mið-Japan í gær, flestir minniháttar. Skjálftinn var af stærðinni 5,7 og voru u...
Kent M20 crash injures two after more than 30 vehicles collide
📅 08.11.2026 👁️ 3
Kent M20 crash injures two after more than 30 vehicles collide
Police say more than 30 vehicles were involved in the incident on the M20 around 18:40 on Saturday.
Kent M20 crash involving 30 vehicles seriously injures two people
📅 08.11.2026 👁️ 2
Kent M20 crash involving 30 vehicles seriously injures two people
The crash happened in fog on Saturday evening on the London-bound carriageway near Maidstone, Kent.
Kosningaúrslit staðfest síðar í mánuðinum
📅 08.11.2026 👁️ 3
Kosningaúrslit staðfest síðar í mánuðinum
Enginn flokkur náði meirihluta þingsæta í þingkosningunum á Nýja-Sjálandi í gær. Stærstu flokkarnir, Þjóðarflokkur forsætisráðherrans Christopher Luxo...
Royal Family join veterans and families at Festival of Remembrance
📅 08.11.2026 👁️ 3
Royal Family join veterans and families at Festival of Remembrance
The senior royals attended the annual event at London's Royal Albert Hall on the eve of Remembrance Sunday.
Duo-euthanasia: When your parents choose to die
📅 08.11.2026 👁️ 4
Duo-euthanasia: When your parents choose to die
Jan and Els sought medical intervention to end their lives together after 50 happy years of marriage, leaving behind their only child.
Sex særðust í flugskeytaárásum í Kyiv
📅 08.11.2026 👁️ 2
Sex særðust í flugskeytaárásum í Kyiv
Að minnsta kosti sex særðust í flugskeytaárásum Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í gær, aðfaranótt laugardags. Árásirnar beindust meðal annars að fjöl...
The Trump coalition is shattered - what will Republicans do now?
📅 08.11.2026 👁️ 1
The Trump coalition is shattered - what will Republicans do now?
Republicans can stick with Trumpism or chart a new path, writes BBC Washington correspondent Daniel Bush.
Ambika Mod: Ceiling is getting higher for South Asian actors
📅 08.11.2026 👁️ 3
Ambika Mod: Ceiling is getting higher for South Asian actors
The actress joins the cast of Black Doves for the second season of Netflix's spy thriller.
Germans wrestle with what to do with Hitler's destroyed Eagle's Nest retreat
📅 08.11.2026 👁️ 2
Germans wrestle with what to do with Hitler's destroyed Eagle's Nest retreat
While some believe the site should be partially or completely rebuilt, others want it abandoned and all memory of its Nazi past forgotten.
Microdramas - why more Brits are watching these ‘snackable’ shows
📅 08.11.2026 👁️ 1
Microdramas - why more Brits are watching these ‘snackable’ shows
The snappy, high-octane episodes - viewed on your phone - are huge in China and on the up in the UK.
Ocarina of Time review: Does Nintendo's Zelda remake match its original?
📅 08.11.2026 👁️ 2
Ocarina of Time review: Does Nintendo's Zelda remake match its original?
Nintendo has released its remake of what is considered one of the best games ever made - the BBC's Tom Gerken gives his verdict.
Spenna í Mið-Austurlöndum sem óttist að Banda­ríkin hefji á ný hernaðar­að­gerðir af fullum þunga - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Spenna í Mið-Austurlöndum sem óttist að Banda­ríkin hefji á ný hernaðar­að­gerðir af fullum þunga - Vísir
Bandaríkjaher hefur framfylgt hafnbanni við strönd Íran og Hormússund svo mánuðum skiptir. Síðasta staðfesta árás Bandaríkjamanna á flutningaskip var ...
Leið­togar óttist að Trump hefji á ný hernaðarað­gerðir af fullum þunga - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Leið­togar óttist að Trump hefji á ný hernaðarað­gerðir af fullum þunga - Vísir
Leið­togar í Mið-Austurlöndum og víðar eru sagðir óttast að Bandaríkjaforseti hefji aftur hernaðarað­gerðir í Íran af fullum þunga. Bandaríkjaher hefu...