Vinsæll vatnsbrúsi innkallaður vegna hættu

Húðnæðis- og mannvirkjanstofnun vekur athygli á innköllun á vatnsbrúsa fyrir börn sem getur skapað köfnunarhættu.
Um er að ræða vatnsbrúsann Gourde Cinnamoroll, Hello Kitty and Friends frá vörumerkinu Primark. Innköllunin nær til allra framleiðslulota vörunnar. Strikamerkið er 991121018 og tegundarnúmer er BLUE 80117–7022701.
Varan er plastglas með röri og loki í laginu eins og höfuð Cinnamoroll-persónunnar úr Hello Kitty and Friends vörulínunni.
Við prófanir á vörunni kom í ljós að útstæðir hlutar í lokinu, sem líkjast eyru persónunnar, eru of langir. Ung börn geta sett þessa hluti upp í sig sem getur valdið köfnunarhættu. Varan uppfyllir ekki lög um öryggi vöru.
Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar og gæta þess að hún sé ekki aðgengileg ungum börnum.