Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir líklegt að nýjar reglur um samfélagsmiðlanotkun barna verði kynntar í sumar.
Von der Leyen ávarpaði ráðstefnu um gervigreind og börn í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur, í dag. Hún sagði að sérfræðingahópur hefði verið beðinn um að leggja fram tillögur um hvað ætti að gera til að vernda börn á samfélagsmiðlum.
Svo gæti farið að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni tillögur að löggjöf um samfélagsmiðla strax í sumar, sagði von der Leyen.