Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að Úkraínumenn séu tilbúnir til að hætta árásum á orkuinnviði Rússa ef þeir geri slíkt hið sama.
Þetta sagði hann í viðtali við fjölmiðla á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann sagði að stjórnvöld bæði í Washington og Kyiv vilji að innrásinni ljúki fyrir veturinn. Zelensky sagði að honum væri ekki kunnugt um afstöðu Rússa til þessa en vonaðist til að stjórnvöldum í Bandaríkjunum tækist að koma á viðræðum að nýju.
Zelensky fundaði með Donald Trump Bandaríkjaforseta í gær. Hann sagði fund þeirra jákvæðan og árangursríkan.