Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri - Vísir

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri - Vísir

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri - Vísir

Þá verður Margrét Þórarinsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum forseti bæjarstjórnar.

Greint var frá því í gær að samkomulag um meirihlutasamstarf flokkanna væri í höfn. Fyrir kosningarnar, þegar Vilhjálmur var kynntur sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins sagði hann að hann myndi einungis segja af sér sem þingmaður ef hann yrði pólitískt kjörinn bæjarstjóri.

Sjá einnig: Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ

Í málefnasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins segir að leiðarstef bæjarfulltrúa flokkanna verði að íbúar njóti góðrar þjónustu, fjölbreyttra tækifæra og öflugra innviða.

Leggja á áherslu á að skapa umhverfi sem styður við atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingu og þá á einnig að styrkja rekstur bæjarins. það sé forsenda öflugra innviða og góðrar þjónustu.

Þá hyggst meirihlutinn ætla að setja skýr mörk í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og segir í sáttmálanum að markmiðið verði að tryggja að „íbúar búi við góða öryggistilfinningu og að Reykjanesbær beri ekki meiri byrðar en önnur sveitarfélög í málaflokknum.“

Sáttmálann í heild má finna hér að neðan.

Ný sókn í bæ tækifæranna

Málefnasáttmáli Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í Reykjanesbæ 2026–2030

Samstarf Sjálfstæðisflokks og Miðflokks byggir á sameiginlegri sýn um öflugan, framsækinn og fjölskylduvænan Reykjanesbæ þar sem ábyrgur rekstur, sterk þjónusta og markviss uppbygging fara saman.

Leiðarstef meirihlutans er að Reykjanesbær verði samfélag í fremstu röð þar sem íbúar njóta góðrar þjónustu, fjölbreyttra tækifæra og öflugra innviða.

Á komandi kjörtímabili verður lögð áhersla á skýra forgangsröðun, skilvirka stjórnsýslu og framkvæmdamiðað vinnulag. Samstarfið byggir á ábyrgð, trausti og vilja til að vinna hratt og vel í þágu bæjarbúa. Ákvarðanir verða teknar með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi og áhersla verður lögð á öfluga og aðgengilega þjónustu fyrir fólk á öllum aldri.

Meirihlutinn mun leggja áherslu á að skapa umhverfi sem styður við atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingu þannig að hér verði til fjölbreytt og vel launuð störf.

Undir stjórn meirihlutans verður unnið að því að styrkja rekstur bæjarins enda er sterk fjárhagsstaða forsenda öflugra innviða og góðrar þjónustu. Áhersla verður lögð á ábyrga fjármálastjórn og að fjármunir bæjarins nýtist sem best í þágu íbúa.

Reykjanesbær stendur á mikilvægum tímamótum með mörg tækifæri til uppbyggingar. Lögð verður áhersla á metnaðarfulla og sjálfbæra uppbyggingu í skipulags-, samgöngu- og umhverfismálum, skýra framtíðarsýn og gott samráð við íbúa og fyrirtæki bæjarins.

Menntun, íþróttir, menning og öflugt félagsstarf eru meðal helstu styrkleika Reykjanesbæjar. Meirihlutinn mun styrkja áfram skólastarf, bæta þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að aðstaða til íþrótta, tómstunda og menningarstarfs þróist í takt við þarfir samfélagsins.

Meirihlutinn hyggst setja skýr mörk í málefnum hælisleitenda og flóttamanna til að tryggja að íbúar búi við góða öryggistilfinningu og að Reykjanesbær beri ekki meiri byrðar en önnur sveitarfélög í málaflokknum.

Með ábyrgri stjórn og skýrri sýn ætlar meirihlutinn að byggja upp samfélag sem fólk er stolt af að búa í, starfa í og ala upp fjölskyldur sínar í. Núna hefst nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna.

Ábyrg fjármál og skilvirkur rekstur

Meirihlutinn ætlar að ráðast í markvissa endurskoðun á rekstri bæjarins. Við munum fara yfir fjármálin með gagnrýnum hætti, nýta fjármuni betur og skapa svigrúm til að lækka skatta á heimili og fyrirtæki.

Nýr meirihluti mun vinna að því að lækka fasteignaskatta og tryggja að hækkandi fasteignamat leiði ekki sjálfkrafa til aukinna álaga á bæjarbúa.

Meirihlutinn mun tryggja fulla fjármögnun verkefna áður en framkvæmdir hefjast og leggja áherslu á vandaða verkefnastýringu með það að markmiði að áætlanir standist og þannig sé vel farið með fé skattgreiðenda.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Framkvæma heildarúttekt á fjármálum sveitarfélagsins
  • Hagræða í rekstri og auka gagnsæi í stjórnsýslu
  • Endurskoða fjármagnsskipan bæjarins með það að markmiði að lækka fjármagnskostnað og ná fram hagstæðari kjörum.
  • Forgangsraða grunnþjónustu og reglubundnu viðhaldi innviða
  • Styrkja tekjugrunn sveitarfélagsins með öflugra og fjölbreyttara atvinnulífi
  • Einfalda stjórnsýslu og stytta boðleiðir innan sveitarfélagsins

Íþróttir

Öflugt íþróttastarf hefur lengi verið einn af styrkleikum sveitarfélagsins. Meirihlutinn vill efla íþróttahreyfinguna enn frekar og tryggja að öll börn og ungmenni geti tekið þátt í íþróttastarfi, óháð efnahag eða félagslegri stöðu.

Áhersla verður lögð á aukinn stuðning við íþróttafélögin, bætta aðstöðu og sterkt samstarf við íþróttahreyfinguna um framtíðarsýn og uppbyggingu mannvirkja.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Tryggja jafnt aðgengi barna að íþróttum óháð efnahag og félagslegri stöðu
  • Gera samninga við íþróttafélögin um aukinn stuðning og lækkun æfingagjalda
  • Byggja upp skilvirkt samstarf við íþróttafélögin með samráði og sameiginlegri stefnumótun
  • Tryggja gervigras á knattspyrnuvelli í samráði við knattspyrnuhreyfinguna
  • Tryggja samkeppnishæfa aðstöðu fyrir iðkendur fimleika
  • Efla og þróa áfram miðlægt íþrótta- og tómstundasvæði sveitarfélagsins

Atvinnulíf og tækifæri

Reykjanesbær er í einstakri stöðu á Íslandi vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll, hafnir og öfluga innviði. Þessi staða skapar samkeppnisforskot á önnur sveitarfélög sem við þurfum að nýta til fulls. Góð lífskjör og sterk þjónusta byggjast á öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi þar sem nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi fá að njóta sín. Þar verða til störf, fleiri tækifæri fyrir bæjarbúa og tekjur sem standa undir grunnþjónustunni okkar.

Meirihlutinn mun vinna að því að Reykjanesbær verði fyrsti kostur fyrir fyrirtæki þar sem skýrt skipulag, lágar álögur, hraði í ákvarðanatöku og jákvætt viðmót skapa umhverfi þar sem hugmyndir verða að veruleika.

Meirihlutinn mun styðja við vöxt mikilvægra stoða samfélagsins, svo sem Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Lögreglunnar á Suðurnesjum og Fjölbrautaskóla Suðurnesja, enda gegna þær lykilhlutverki í áframhaldandi vexti bæjarins.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Vinna markvisst að því að fá afhent landsvæði í eigu Kadeco og ríkisins í bænum
  • Markaðssetja styrkleika svæðisins til að laða að ný fyrirtæki og auka fjárfestingu
  • Halda gjöldum og álögum í lágmarki
  • Þróa ný atvinnusvæði og flýta uppbyggingu núverandi svæða
  • Tryggja gott samstarf við fyrirtæki í sveitarfélaginu
  • Styðja við að skipastóll Landhelgisgæslunnar verði staðsettur í Reykjanesbæ
  • Markaðssetja Reykjanesbæ sem áfangastað fyrir ferðamenn
  • Efla frumkvöðlastarf og nýsköpun með sterkari tengingu atvinnulífs, menningar og skóla
  • Tryggja nauðsynlegar vegtengingar að atvinnusvæðum

Skipulag og uppbygging

Skipulag bæjarins hefur bein áhrif á daglegt líf fólks og mikilvægt er að uppbygging innviða haldi í við vöxt sveitarfélagsins.

Meirihlutinn vill auka framboð húsnæðis sem íbúar kalla eftir, hraða nauðsynlegri innviðauppbyggingu og skapa jafnvægi í þróun hverfa bæjarins þannig að íbúar geti valið sér húsnæði sem hentar þeim og atvinnulífið fái svigrúm til að vaxa.

Við ætlum að gera fólki kleift að byggja meira og borga minna með því að afnema innviðagjaldið sem fráfarandi bæjarstjórn setti á fót.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Stórauka framboð lóða fyrir sérbýli, meðal annars með því að ljúka skipulagsvinnu við Keflavíkurborgir
  • Fella niður innviðagjaldið og skapa hvata sem hraða uppbyggingu og draga úr lóðabraski
  • Auka framboð atvinnulóða með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki
  • Tengja betur saman bæjarhluta, meðal annars Ásbrú og Ásahverfi
  • Efla miðbæinn sem lifandi hjarta bæjarins
  • Breyta fyrirhuguðu skipulagi við Akademíureit
  • Tryggja að ekki sé þrengt að einkabílnum

Útlendingamál

Meirihlutinn leggur áherslu á ábyrga og skýra stefnu í útlendingamálum þar sem hagsmunir bæjarbúa, öryggi samfélagsins og geta innviða sveitarfélagsins eru höfð að leiðarljósi.

Meirihlutinn leggur áherslu á farsæla aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi og þar gegna menntakerfið og íþróttastarf lykilhlutverki.

Reykjanesbær hefur um langt skeið borið óeðlilega miklar byrðar vegna móttöku hælisleitenda og flóttafólks og ljóst er að núverandi staða er ekki sjálfbær. Mikilvægt er að sveitarfélagið taki ekki á sig frekari skuldbindingar í málaflokknum.

Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að þeir sem setjast að í Reykjanesbæ virði íslensk lög, gildi og samfélagsreglur og taki virkan þátt í samfélaginu. Skýr mörk, ábyrg stefna og aukinn fyrirsjáanleiki eru forsenda öryggis, samheldni og trausts í samfélaginu.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Ekki gera nýja flóttamannasamninga við ríkið á komandi kjörtímabili
  • Tryggja að kostnaður vegna hælisleitenda falli ekki á sveitarfélagið
  • Setja skýr mörk og skapa fyrirsjáanleika í málaflokknum
  • Styðja innflytjendur til virkrar þátttöku og aðlögunar að íslensku samfélagi

Leikskólar

Meirihlutinn mun taka skýra forystu í málaflokknum með það að markmiði að lækka inntökualdur barna, efla mönnun og tryggja fjölskyldum öruggari og betri þjónustu.

Áhersla verður lögð á að styrkja faglegt starf leikskólanna, bæta starfsaðstæður starfsfólks og tryggja jafnræði milli leikskóla sveitarfélagsins.

Meirihlutinn mun setja á fót sérstakt leikskólaráð til að vinna markvisst að því að bæta þjónustu sveitarfélagsins í málaflokknum.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Lækka inntökualdur barna í leikskóla og vinna markvisst að því að útrýma biðlistum
  • Styðja starfsfólk til náms og fjölga leikskólakennurum og fagmenntuðu starfsfólki
  • Jafna aðstæður milli leikskóla sveitarfélagsins
  • Bæta starfsaðstæður kennara og starfsfólks
  • Stytta biðtíma eftir sérfræðiþjónustu og leggja áherslu á snemmtæka íhlutun
  • Gera þjónustukönnun til hagaðila um hvort vilji sé til að skoða breytingar á skipulögðum lokunum leikskóla

Umhverfi, fegrun og lífsgæði

Gott umhverfi skiptir máli fyrir heilsu, vellíðan og daglegt líf íbúa. Meirihlutinn vill byggja upp bæ þar sem fólk nýtur þess að vera, með grænum svæðum, góðum stígum og aðgengilegum áfangastöðum fyrir alla aldurshópa.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Þróa stórt útivistarsvæði með áherslu á aðgengi og upplifun íbúa og gesta
  • Byggja upp fjölskyldusvæði í Innri-Njarðvík
  • Efla græn svæði og bæta ásýnd bæjarins
  • Tengja hverfi betur með göngu- og hjólastígum
  • Efla áfangastaði fyrir íbúa og gesti
  • Styrkja skólalóðir sem útivistarsvæði

Samgöngur

Samgöngur hafa bein áhrif á lífsgæði, öryggi og aðgengi íbúa að vinnu, skóla og þjónustu. Meirihlutinn vill bæta umferðarflæði, auka öryggi og stuðla að skilvirkum samgöngum sem styðja við daglegt líf fólks. Áhersla verður lögð á að bæta tengingar innan bæjarins og við helstu atvinnu- og þjónustusvæði.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Bæta umferðarflæði með breikkun gatna og nýjum hringtorgum, til dæmis Njarðarbraut, og göng við Ásahverfi
  • Forgangsraða tengingum Reykjanesbrautar við Grænás
  • Efla almenningssamgöngur innan bæjarins og við flugstöðina
  • Styðja við íþrótta- og tómstundastarf barna með betra aðgengi og öruggari leiðum
  • Setja umferðaröryggi í forgang í allri skipulags- og framkvæmdavinnu
  • Halda áfram uppbyggingu göngu- og hjólastíga í og um bæinn

Samfélag fyrir alla – betri velferð

Meirihlutinn vill velferðarþjónustu sem styður fólk til sjálfstæðis á eigin forsendum. Áhersla verður lögð á aðgengilegt og skilvirkt stuðningskerfi sem byggir á valfrelsi, ábyrgð og raunverulegum þörfum fólks, óháð aldri eða aðstæðum.

Meirihlutinn mun leggja áherslu á að einfalda aðgengi að upplýsingum og þjónustu sveitarfélagsins

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Bjóða leigjendum félagslegs húsnæðis að kaupa íbúðina sem þeir leigja
  • Koma á hvatagreiðslum til fatlaðra einstaklinga eldri en 18 ára
  • Auka valfrelsi í þjónustuúrræðum og styðja við sjálfstæða búsetu
  • Gera fleirum kleift að vinna fyrir sér með aukinni áherslu á „vinnu með stuðningi“

Eldri borgarar

Meirihlutinn leggur áherslu á að eldri borgarar í Reykjanesbæ njóti öryggis, virðingar og góðra lífsgæða. Áhersla verður lögð á að styrkja þjónustu við eldri borgara, efla stuðning við heimabúsetu og skapa fleiri tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu.

Mikilvægt er að þjónusta sé aðgengileg, upplýsingagjöf skýr og að reynsla og þekking eldri borgara fái að njóta sín í samfélaginu.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Tryggja samfellu í þjónustu og efla stuðning við heimabúsetu
  • Bjóða íbúum 65 ára og eldri reglulegar heilsufarsmælingar
  • Styrkja félagsstarf og efla virkni eldri borgara
  • Auka þátttöku eldri borgara í skólastarfi, til að mynda með lestrartengdum verkefnum fyrir börn

Grunnskólar

Markmið meirihlutans er skýrt: Reykjanesbær á að vera með framúrskarandi grunnskóla þar sem nemendur fá tækifæri til að ná árangri í öruggu og metnaðarfullu námsumhverfi.

Áhersla verður lögð á að styðja kennara, bæta aðbúnað skóla og tryggja að hver skóli hafi svigrúm til að mæta ólíkum þörfum nemenda.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Hefja undirbúning að nýjum grunnskóla á Ásbrú
  • Stytta biðtíma eftir sérfræðiþjónustu
  • Stórbæta skólalóðir og gera þær að raunverulegum útivistarsvæðum
  • Tryggja jafnræði í aðbúnaði milli skóla
  • Auka hreyfingu barna í samstarfi við íþróttafélög
  • Efla endurmenntun og faglega leiðsögn kennara
  • Tryggja markvissa eftirfylgni með líðan og öryggi nemenda
  • Leggja áherslu á snemmtæka íhlutun og stuðning við nemendur sem þurfa á aðstoð að halda
  • Styðja við fjölbreyttar kennsluaðferðir og aukna nýtingu tækni í námi
  • Klára núverandi framkvæmdir við Holtaskóla og Myllubakkaskóla
  • Tryggja samræmdar árangursmælingar í grunnskólum Reykjanesbæjar

Tómstunda- og frístundastarf

Líflegt samfélag byggist á þátttöku og öflugu félagslífi. Meirihlutinn vill að Reykjanesbær verði leiðandi sveitarfélag þar sem einfalt er fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur að taka þátt í fjölbreyttu tómstunda- og frístundastarfi.

Áhersla verður lögð á að skapa öruggt og aðgengilegt umhverfi þar sem allir finna sitt rými í samfélaginu, óháð aldri eða aðstæðum.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Sameina frístundastarf undir eina öfluga tómstundamiðstöð
  • Tryggja félagsmiðstöðvar við hvern grunnskóla
  • Opna og þróa ungmennahús fyrir 16–18 ára
  • Stuðla að fjölbreyttu framboði tómstunda fyrir alla aldurshópa og börn með sérþarfir
  • Efla fræðslu og stuðning við foreldra

Menning

Reykjanesbær er einn öflugasti menningarbær landsins með sterka sérstöðu sem miðstöð tónlistar og skapandi greina. Meirihlutinn vill byggja áfram á þessum styrkleikum, efla menningarlíf bæjarins og gera það enn sýnilegra fyrir íbúa og gesti.

Áhersla verður lögð á öflugt menningarstarf, sterka viðburði og áframhaldandi uppbyggingu menningar- og ferðatengdra áfangastaða í sveitarfélaginu.

Verkefni kjörtímabilsins:

  • Byggja markvisst á ímynd Reykjanesbæjar sem tónlistarhöfuðborgar landsins
  • Efla söfn bæjarins og nýta þau betur til að laða að innlenda og erlenda gesti
  • Efla viðburði á borð við Ljósanótt, 17. júní og Aðventugarðinn
  • Efla Rokksafn Íslands sem lykiláfangastað í íslenskri tónlistarsögu
  • Skoða möguleika á að opna aftur og efla Landnámsdýragarðinn með stuðningi einkaaðila
  • Móta framtíðarsýn um húsnæði og aðstöðu menningarhúsa í sveitarfélaginu

Ábyrg stjórnun og skýr verkaskipting

Til að tryggja markvissa framkvæmd og eftirfylgni með áherslum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks verða nefndir og ráð sveitarfélagsins endurskipulögð, sérfræðihópar skipaðir og ráðist í úttektir á helstu málaflokkum.

Meirihlutinn mun forgangsraða verkefnum í þágu bæjarbúa og grunnþjónustu og skera niður óþarfa yfirbyggingu í stjórnsýslunni.

Sjálfbærniráð, lýðheilsuráð, menningar- og þjónusturáð og stjórn eignarsjóðs verða lögð niður. Þá verður Umhverfis- og skipulagsráð lagt niður en í staðinn munum við taka upp umhverfis- og framkvæmdaráð og skipulagsráð.

Fastanefndir sveitarfélagsins munu verða:

  • Atvinnu- og hafnarráð
  • Bæjarráð
  • Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð
  • Leikskólaráð
  • Menntaráð
  • Skipulagsráð
  • Umhverfis- og framkvæmdaráð
  • Velferðarráð
  • Öldungaráð
#bæjarstjóri #verður #vilhjálmur #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262887268d/vilhjalmur-verdur-baejarstjori

📰 Aðrar fréttir

Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 2
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 1
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 2
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 2
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 4
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 4
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 4
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...