Alþingi Íslands er oft kallað hjarta lýðveldisins. Það er falleg samlíking — en hún vekur líka ákveðnar áhyggjur. Því ekkert heilbrigt hjarta tekur sér þriggja mánaða hlé þegar líkaminn stendur frammi fyrir alvarlegum vanda. Enginn myndi sætta sig við að slökkviliðið færi í sumarfrí á meðan eldar loguðu um samfélagið. Enginn myndi samþykkja að Landspítalinn lokaði starfsemi sinni vegna sumarleyfa á sama tíma og sjúklingar biðu á göngum. Enginn myndi telja eðlilegt að lögreglan tilkynnti að hún hygðist endurskoða stöðuna í september.
Vilhelm Jónsson skrifar: Landið er stjórnlaust — og úrræðaleysið algert