Í nýjasta þætti Meiningar og þeim næsta er hatursorðræða gagnvart hinsegin fólki skoðuð, reynt að skilja hana og greina áhrif hennar. Gerður er skýr greinarmunur á athugasemdum sem lýsa ótta, álitamálum og vangaveltum og þeim sem fela í sér andúð, niðurlægingu og/eða hvatningu til mismunar eða ofbeldis.
Fullorðið fólk að skrifa undir réttu nafni
Í þættinum eru lesin ýmis raunveruleg dæmi um ummæli sem Anna Gyða Sigurgísladóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1, fann við einfalda leit í athugasemdum undir fréttum af hinsegin málefnum.
Þar koma fyrir ummæli eins og „þetta geðsjúka translið,“ að það þurfi „að stoppa þetta brjálæði,“ að regnbogafáinn sé með „drullubrúnum fyrir aidssjúklinga og ljósblátt og ljósbleikt fyrir pedófílíu.“ Orð eins og heilavírus, barnagirnd og barnaníðingar eru skrifuð og sagt að „Satan sé sleppt lausum.“
Í þættinum reynir Anna Gyða að skilja hvað býr að baki mörgum þessara athugasemda og gerir tilraun til að hringja í fólkið. Henni virðist sem að í flestum tilfellum sé þetta fullorðið fólk sem birtir athugasemdir undir sínu fulla og rétta nafni og oft á sínum persónulega samfélagsmiðli. Ekkert þeirra sem hún hringdi í var tilbúið til að ræða málið á upptöku.
Síðasta haust var birt rannsókn sem greindi frá því að tíunda hver athugasemd sem látin er falla um hinseginleika í athugasemdakerfum íslenskra síðna er hatursfull.
Einnig kom þar í ljós að meðalfjöldi athugasemda við slíkar færslur hafði ríflega tvöfaldast frá árinu á undan.
Í almennum hegningarlögum er ákvæði í a-lið 233. greinar laganna sem gerir hatursorðræðu ekki aðeins ólöglega heldur refsiverða.
Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, segir að á síðustu fimm árum hafi Samtökin kært fjórum sinnum vegna hatursorðræðu. Það er búið að dæma í tveimur málanna og annað málið vannst. Rannsókn á þriðja málinu var látin falla niður og fjórða málið er enn í gangi.
Forkastanlegt að rannsókn sé hætt
Anna Gyða spyr hvort málin séu ekki fá miðað við fjöldann af hatursfullum ummælum.
„Jú, og það er mjög alvarlegt. En staðan hjá okkur í Samtökunum er sú að við höfum hvorki fjármagn né mannskap til að fara í öll þau mál sem við myndum vilja fara í. Bæði er það tímafrekt og kostnaðarfrekt að höfða mál,“ svarar Kári.
Hann bendir á að lögregla þyrfti að taka upp mál sjálf.
„En hana vantar dómaframkvæmd og það að þessi mál séu tekin lengra. Það finnst okkur forkastanlegt,“ segir Kári og vísar þá til málsins sem var nýlega látið niður falla.
Í þættinum fer Anna Gyða yfir hatursorðræðuákvæðið og hversu sjaldan hefur reynt á það á þeim rúmu fimmtíu árum sem það hefur verið í gildi.
Þá er rætt við fræðafólk og baráttufólk og rýnt í félagsfræðilegar rannsóknir í von um að skilja betur hatursorðræðu og áhrif hennar.