Á Vesturlandi verður þurrt að mestu og sæmilega milt ef marka má spá Veðurstofu Íslands en þar segir þó að einhverjir dropar geti fallið á Suðurlandsundirlendinu. Í dag er, líkt og hefur ekki farið fram hjá neinum, þjóðhátíðardagur Íslendinga og í tilefni hans er fjölbreytt dagskrá í boði um allt land.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á höfuðborgarsvæðið verði veðuraðstæður í góðu lagi en að þar nái vindur sér varla á strik og „ætti því að viðra vel til hátíðarhalda“. Næstu daga verður lítil breyting á veðri en þó á að draga smám saman úr vindi á Suðausturlandi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag og föstudag: Norðaustan 8-15 m/s og rigning, en lengst af þurrt um landið vestanvert. Hiti 6 til 15 stig, mildast á Suðvesturlandi.
Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10. Skúrir á sunnanverðu landinu, einkum seinnipartinn, en stöku skúrir norðanlands. Hiti 8 til 15 stig.
Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt. Dálítil rigning norðantil, en skýjað með köflum og stöku skúrir syðra. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt og skúrir á víð og dreif. Hiti 8 til 15 stig.