Hægt er að taka næstu skref í átt að endurreisn Grindavíkur samkvæmt nýju áhættumati almannavarna. Forsendur eru fyrir fasteignakaupum bæjarbúa og skólahaldi. Bæjarstjóri segir mikla eftirspurn Grindvíkinga að kaupa hús sín tilbaka.
Stór skref tekin með nýju áhættumati
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar og gera ráð fyrir því að hægt sé að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur húsnæði í bænum.
Þá séu einnig forsendur fyrir skólahaldi í bænum en Grindvíkingar hófu skólahald á ný í haust þrátt fyrir að fyrra áhættumat hafi mælt gegn því. Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær hafa boðað til opins fundar í Grindavík í kvöld þar sem niðurstöðurnar verða kynntar
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, og Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, ræddu við Ragnar Jón Hrólfsson fréttamann fyrir fundinn.
„Þetta eru fordæmalausir atburðir sem Grindvíkingar hafa gengið í gegnum. Þetta eru náttúruhamfarir sem hafa tekið mörg ár,“ segir Runólfur.
„Nú er staðan þannig að þó að þessi atburður sé enn í gangi, það er enn kvikusöfnun undir Svartsengi, þá erum við að taka þau skref að við erum að læra að lifa hér með þessari náttúruvá. Það er kannski stóra skrefið sem við erum að taka núna.“
Mikil tímamót
Runólfur segir fjölmarga áhættuvísa í matsvinnunni liggja til grundvallar.
„Við þurfum að vakta náttúruvána, Veðurstofan gegnir þar lykilhlutverki. Við þurfum að hafa gott viðbragð, viðbragðsaðila, og þá er ég ekki eingöngu að tala um lögreglu, björgunarsveitir og slökkvilið heldur sveitarfélagið líka og fleiri aðila. Og svo þurfum við hér öflugt fólk sem getur brugðist við, er með góðar áætlanir, rýmingaráætlanir og fleiri viðbragðsáætlanir. Þessar stóru forsendur eru til staðar og þess vegna erum við á þessum stað núna.“
Pétur segir þetta mikil tímamót.
„Þar sem við erum með vel ígrundaða vinnu af fagmönnum, heimamönnum og það er mikið lagt í þetta. Niðurstaðan er sú að það er öruggt að vera í Grindavík að tilteknum mótvægisaðgerðum og öryggisaðgerðum frátöldum. Það sem þessi niðurstaða byggir á er vönduð vinna sem við getum byggt á.“
Grindvíkingar vilji snúa aftur heim
Pétur segir mikla eftirspurn af hálfu Grindvíkinga að snúa til baka. Ríkisstjórnin muni hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur hús sín í bænum.
„Þannig það er mikilvægt að henda sér í þau verkefni sem fela í sér að bjóða þessi hús, þetta þurfa að vera fjölbreyttar leiðir fyrir fjölbreyttan hóp fólks og endurspegla raunaðstæður fólks.“