Sigrún Ólafsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð, vakti athygli á Facebook-síðu sinni á versnandi símasambandi eftir að slökkt var á 2og 3g sendum hérlendis. Viðbrögðin stóðu ekki á sér en 52 athugasemdir hafa þegar borist um verra samband.
„Við höfum heyrt af þessum kvörtunum en hinsvegar fáum við ekki mikið af þessum kvörtunum inn til okkar þannig við getum farið og mælt þær og staðsett þær nákvæmlega. Það myndi hjálpa okkur mest ef þetta væri svolítið nákvæmt, það væri þá ákveðið svæði sem var með þjónustu en er ekki lengur með þjónustu,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu en hún er í virku samtali við fjarskiptafélögin um útbreiðslumál. Mikilvægt er að sambandið sé í lagi.
Sambandið á ekki að versna og við erum með ákvæði í tíðniheimildum um það að sambandið eigi að vera að minnsta kosti jafn gott að meðtaltali eftir að slökkt var á 2g og 3g í 4g og 5g.
Fréttastofa hefur áður flutt fréttir af slæmu sambandi, sérstaklega á Vestfjörðum, en nú virðist sem sambandsleysið sé víðar, meðal annars í Skagafirði að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar sveitarstjóra:
„Maður finnur fyrir þessu og heyrir þetta frá íbúum, sérstaklega í dreifbýlinu, að símasamband sé bara ekki jafn gott og það var áður en slökkt var á þessum sendunum. Þetta er bara gríðarlegt hagsmunamál, öryggismál. Það er mjög dapurtlegt að á árinu 2026 sé skerðing á þessum þætti gagnvart íbúum.“