Óvenjuleg sjón blasti við gestum á Kópaskeri þegar tónlistarmaðurinn Mugison hélt útitónleika við Útskála á sunnudag. Á meðan tónleikarnir stóðu yfir myndaðist svokallaður rosabaugur á himninum.
Rosabaugur myndast þegar sólarljós brotnar og endurkastast í örsmáum vatnsdropum eða ískristöllum í loftinu og getur birst sem litríkur hringur eða baugur í kringum sólina. Það er engin spurning að sjónarspilið setti svip á þessa frábæru tónleika, sem þegar skartaði fögru útsýni yfir hafið við einn fallegasta stað á svæðinu.
Mugison hafði sjálfur lýst tónleikunum sem „litlum kósý tónleikum“ þar sem fólk gæti komið með teppi, útilegustóla og nesti og notið stundarinnar saman. Veðrið lék við gesti og rosabaugurinn gerði upplifunina enn eftirminnilegri.
Hátíð sem spannar heila viku
Tónleikarnir mörkuðu upphaf Sólstöðuhátíðarinnar á Kópaskeri sem stendur yfir fram að sumarsólstöðum. Hátíðin er skipulögð af hópi heimakvenna ásamt atvinnu- og samfélagsfulltrúa Öxarfjarðarhrepps og er lögð áhersla á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Í ár er sérstök áhersla lögð á að minnast þess að 50 ár eru liðin frá Kópaskersskjálftanum sem varð 13. janúar 1976. Af því tilefni verður sérstök jarðskjálftahátíð á laugardaginn þar sem meðal annars verða sagðar sögur þeirra sem upplifðu skjálftann, opið hús á Byggðasafninu og gestum gefst kostur á að prófa jarðskjálftahermi.
Á dagskránni eru einnig tónleikar með Blood Harmony, sólstöðuganga, fjölskylduskemmtun með Íþróttaálfinum og Sollu stirðu, gönguferðir, markaðir, listasýning og fjölmargir aðrir viðburðir sem ætlað er að gera hátíðina að frábærri sumarhátíð fyrir heimamenn og gesti.
