Pétur Georg Markan sem ráðinn var bæjarstjóri Grindavíkur á dögunum hefur talsverða reynslu á bakinu þar sem hann gegndi síðast starfi bæjarstjóra í Hveragerði og var einnig sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í fimm ár. Hann hefur einnig komið að fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila auk þess sem hann var biskupsritari um tíma og stýrði samskiptum þjóðkirkjunnar. Pétur ræddi um verkefnin sem eru í forgangi í Grindavík í morgunþættinum Fram undan á Rás 2.
Góður grunnur til staðar í Grindavík
„Grindavík er algjörlega einstakur bær, á íslenska sveitarfélagavísu. Hann hefur alltaf boðið upp á gæðaþjónustu og það eru gæði í Grindavík,“ segir Pétur sem tekur við starfinu af Fannari Jónassyni sem gegndi því frá 2017 og var andlit bæjarins þegar jarðhræringar á Reykjanesskaga urðu þess valdandi að rýma þurfti Grindavík og finna bæjarbúum ný heimili. Pétur segir að þrátt fyrir hamfarirnar sé góður grunnur til staðar í Grindavík. „Þegar við horfum nú fram á við, sem er mikilvægt að gera núna, þá er grunnurinn afskaplega góður í bænum. Þannig að verkefnið leggst afar vel í mig,“ segir Pétur Markan.
Samfélagssáttmáli og samkennd ræður för
Pétur sest í stól bæjarstjóra á nýjum og spennandi tímum í Grindavík og ljóst er að verkefnin sem snúa að endurreisn og uppbyggingu eru í algjörum forgangi. Stofnað var til samfélagssáttmála eftir síðustu kosningar og því enginn meirihluti starfandi. Pétur segir það góða og sterka ákvörðun sem rammar inn þá samkennd sem býr í íbúum.
„Við erum að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga sem að bjuggu hér áður og þá Grindvíkinga sem búa munu í bænum til framtíðar.“ Hann segir mikilvægt að finna tímamót í núinu og taka skipulega til verka í uppbyggingunni. Saman þurfi bæjaryfirvöld og íbúar að ná saman kraftmiklum takti sem þurfi til að einkenna uppbygginguna og framtíðina í Grindavík.