Hann varð landsþekktur þegar hann stjórnaði og kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu á árunum 1957-82 og ekki síður fyrir frumkvöðlastarf í íþróttum. Fáir hafa stuðlað meira að framgangi skíðaíþróttarinnar á Íslandi. Hann, ásamt félögum sínum, stofnaði og stjórnaði Skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum frá 1961 til aldamóta 2000 þegar loka þurfti skólanum vegna snjóleysis. Skíðaskólinn laðaði til sín tugi þúsunda Íslendinga sem nutu þess að skíða að sumri til á hálendinu á daginn og syngja saman á víðfrægum kvöldvökum.Að neðan má heyra sögustund með Valdimari í Kerlingarfjöllum í seinni tíð.
Valdimar Örnólfsson fæddist á Suðureyri í Súgandafirði 9. febrúar 1932. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Valdimar kvæntist 19. mars 1963 Kristínu Jónasdóttur f. 24. apríl 1933, fyrrverandi flugfreyju og forstöðumanni hjá Reykjavíkurborg. Kristín lést 17. júní. 2019. Þau eignuðust þrjá syni, Jónas orkuverkfræðing og leiðsögumann fæddur árið 1963, Örnólf fæddur árið 1964 bæklunarlækni og Kristján bæklunarlækni í Bodö í Noregi, fæddur árið 1967.
Valdimar og Kristín eignuðust níu barnabörn og tvö barnabarnabörn.Valdimar við kennslu í íþróttahúsi Háskóla Íslands.
Valdimar lauk stúdentsprófi frá MR 1953, íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1954, íþróttafræðiprófi frá Íþróttaháskólanum í Köln 1956, prófi í frönsku og frönskum bókmenntum frá Háskólanum í Grenoble í Frakklandi 1957.Hann var íþróttakennari við MR 1957-67 og kenndi frönsku við sama skóla 1958-72. Hann var íþróttastjóri Háskóla Íslands frá 1967 og þar til hann fór á eftirlaun.Valdimar Örnólfsson og Magnús Pétursson við leikfimikennslu um miðja síðustu öld. Hér má sjá framkvæmdina í þá daga. Valdimar lék Harald í Skugga-Sveini í Þjóðleikhúsinu 1961-62, lærði söng hjá Sigurði F. Demetz 1958-61, var einn af stofnendum Söngsveitarinnar Filharmoníu, söng í MR kvartettinum, Stúdentakórnum og söng um áratugaskeið með Karlakórnum Fóstbræðrum og síðar með Gömlum Fóstbræðrum.Valdimar keppti á Vetrarólympíuleikunum í Cortina á Ítalíu 1956 og var þjálfari og fararstjóri alpagreina á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1964. Valdimar var formaður Íþróttakennarafélags Íslands 1957-58, formaður Íþróttanefndar ríkisins 1971-91, var stofnandi og fyrsti formaður Fimleikasambands Íslands 1968-70 og var fyrsti formaður Ólympíuakademíunnar 1987-97.Valdimar var Íslandsmeistari á skíðum 1952 og í frjálsum íþróttum 1953. Hann tók þátt í fjölda stúdentamóta erlendis, var Frakklandsmeistari stúdenta á skíðum 1957 og í þriðja sæti í stórsvigi á heimsmeistaramóti stúdenta í Zakopane í Póllandi 1958. Hann var fánaberi í ólympíuliði Íslands í alpagreinum í Cortina á Ítalíu 1956 og var þjálfari, fánaberi og fararstjóri á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1964.Valdimar og Magnús Pétursson á góðri stundu. Valdimar er heiðursfélagi ÍSÍ og FSÍ, og hefur m.a. hlotið riddarakross Fálkaorðunnar.Útför Valdimars fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. maí.
Íbúum Reykjavíkur ásamt aðilum verslunar og þjónustu er boðið til samráðsfundar til að ræða um öryggi í borginni. Fundurinn sem er haldinn í kjölfar m...
Amerískir ferðamenn skapa mikla hættu á vegunum á Íslandi. Flestir þeirra hafa lítið frí, vilja nýta tímann og keyra strax af stað á bílaleigubílum, ö...
Þrír hafa verið handteknir vegna fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur en samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilvil...
Víða um Evrópu og í Kanada er unnið að því að auka fjárútlát til varnarmála. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lengi þrýst á Evrópumenn um að taka meiri á...
Kerfi hafi verið uppfærð og samræmd og birtist nú sömu upplýsingar í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple. Þá taki kom...
Átján ára piltur á Akureyri segist hafa sótt um störf á fleiri stöðum en hann geti talið án þess að fá nokkur viðbrögð frá atvinnurekendum. Pilturinn ...
„Ef fullvalda ríkisstjórnir, á hverjum tíma og úr öllum flokkum, geta ekki tryggt þjóðinni nothæfan gjaldmiðil, þá er það fullveldi ekki mikils virði,...
Stálheppinn einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu datt í lukkupottinn þegar hann vann 45,4 milljónir króna í EuroJackpot.Í tilkynningu frá Íslenskri gets...
Thousands of residents were left without electricity yesterday evening (Thursday) after a piece of electricity network equipment that supplies power t...
„Það er greinilegt að landsmenn hlakka til Verslunarmannahelgarinnar og margir farnir að huga að hátíðarfatnaðinum og fylgihlutunum,“ segir Sigrún Edd...
Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu og Neyðarlínan hefur ein...
Yankovic ræddi hátíðina í tengslum við ákvörðun sína um að hætta við að taka þátt í auglýsingu fyrir hugbúnað þegar hann uppgötvaði að hún væri búin t...
Bandaríski leikarinn Johnny Depp (63) kom aðdáendum á óvart með því að mæta á San Diego Comic-Con á fimmtudaginn, klæddur sem Ebenezer Scrooge.Depp mæ...
Ég er ekki að skrifa þetta sem maður sem er annaðhvort með eða á móti ESB. Ég er bara að horfa á þetta út frá reynslu minni áralöngu af íslenskum stjó...
Ótrúlegt myndband af birni sem sat fastur efst á rafmagnsstaur í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga....
Elon Musk, eigandi Tesla, SpaceX og fleiri fyrirtækja, segist ætla að láta gervigreindarforrit sitt Grok búa til kvikmynd í fullri lengd byggða á Ódys...
Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á rannsóknarholu. Markmiðið er að finna nýjar leiðir til nýtingar á ofurheitum jarðhi...
Gervigreindarlíkön OpenAI fundu áður óþekktan öryggisgalla, brutust út úr lokuðu tilraunaumhverfi fyrirtækisins og réðust inn í framleiðslukerfi Huggi...
Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í jú...
Engin lán Landsvirkjunar eru lengur með ríkisábyrgð eftir að félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð í dag. Þetta kemur fram í tilkyn...
Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki síst um framtíð unga fólksins á Íslandi. Neikvæða fólkið sem vill ekki leyfa landsmönnum að ákveða framtíð s...
Eftir rigningatíð á suðvesturhorni landsins síðustu daga létti til eftir hádegi í gær og sást í bláan himinn sem ekki hefur verið algeng sjón að undan...
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi Rabbíni gyðinga á Íslandi virðist hafa safnað 436 millj...
Þar koma saman tónlist, myndlist, vísindi, geimferðir, tækni og vellíðan í kringum almyrkva á sólu og takmarkaður miðafjöldi í boði. Jón Bjarni segir ...
Visitors enjoying a morning at Las Canteras Beach in Las Palmas de Gran Canaria were treated to an unexpected sight yesterday (Thursday) when a woman ...
Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jako...
„Mér blöskrar þegar ég les fréttir þar sem menn eru að segja að þetta sé bara allt í góðu og komi engum á óvart,“ segir Hallgrímur Lárusson, framkvæmd...
Þúsundir hafa flúið heimili sín í Frakklandi og Spáni vegna þessa og hafa Frakkar farið fram á aðstoð frá Evrópusambandinu til að tækla elda sem þar b...
Umræða um innleiðingu svokallaðs „kill switch“, það er að segja úrræðis til að gera gervigreindarforrit óvirk, hefur aukist samfara miklum framförum t...
Stefnunum var ætlað að þvinga þrjá blaðamenn til að bera vitni fyrir svokölluðum ákærudómstól og opinbera þar hverjir heimildarmenn þeirra vegna frétt...
„Í dag hreyfist smálægð til austurs, skammt suður af landinu. Breytileg og síðar norðlæg átt 3-10 m/s og skýjað með lítilsháttar vætu af og til í fles...
Í júlí 2024 gekk Axel Rudakubana inn á dansnámskeið fyrir börn í Southport og stakk þar þrjár stúlkur til bana. Þá særði hann átta önnur börn og tvo f...
Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, veltir því fyrir sér hvers vegna gerðar séu strangari líkamlegar kröfur til karla en...
Lögregla leiðbeindi tveimur ungum stúlkum sem töldu sig vera fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun í gærkvöld eða nótt. Þær komust út um neyðar...
Tvær ungar stúlkur töldu sig vera fastar inni í Egilshöll eftir lokun í gærkvöld. Þær höfðu farið á salernið eftir bíóferð og ekki komist út úr höllin...
Í síðustu viku bárust fregnir af því að Valgeir Örn Ragnarsson hefði sagt skilið við fréttastofu Rúv og væri orðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsn...
Í flestum landshlutum verður skýjað í dag með lítilsháttar vætu af og til en eftir hádegi léttir til sunnan- og vestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjas...
Nýju tollarnir eru á bilinu tíu til 12,5 prósent en athygli vekur að þeir eru lagðir á með vísan til löggjafar gegn vinnuþrælkun. Það er að segja, Ban...
Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig Landsbankinn jók hagnað sinn um næstum 4 milljarða á milli ára. „Uppgjör bankans á fyrri hluta þessa árs...
Þetta segir Mike Nicolaisen, eigandi og framkvæmdastjóri Arctic Wonderland Tours, Hotel Angmagssalik og Hotel Kulusuk á Austurgrænlandi. Hann segir ák...
A 45-year-old man has been arrested by the Guardia Civil after being caught allegedly carrying out a burglary inside a house in Las Americas in the so...
Frá þessu greinir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni næturinnar. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fallið af rafhlaup...