Uppákoma varð í dómsal í Reykholtsmálinu í dag þegar vitni í málinu, fyrrverandi eiginkona ákærða Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar, ætlaði að gefa vitnaskýrslu í gegnum fjarfundabúnað.Eftir að sækjandi bar upp fyrstu spurninguna virtist vitnið ætla að koma með yfirlýsingu en hún sagði:„Ég veit að maðurinn minn er saklaus.“Lengra komst hún ekki því viðstaddir heyrðu í karlmannsrödd í bakgrunni hjá vitninu. Varð þá nokkuð uppþot enda þótti ljóst að þarna væri hinn ákærði Sigurður Gunnar viðstaddur.
Uppþot í dómsal eftir að karlmannsrödd heyrðist óvænt í skýrslugjöf vitnis í Reykholtsmálinu