Fæðubótarefnið Pre-Workout er til sölu í matvöruverslunum og heilsubúðum undir ýmsum vörumerkjum.
Það er markaðssett sem heilsueflandi, það auki úthald á æfingum og bæti endurheimt. Efnið getur innihaldið allt að 330 milligrömm af koffíni í einum skammti.
Fréttastofu hafa borist ábendingar um unglinga sem hafa neytt Pre-Workouts og þurft í kjölfarið að leita til læknis vegna koffíneitrunar.
Einkenni á borð við hjartsláttartruflanir, höfuðverk, svima, ógleði og kvíða gerðu vart við sig, auk neikvæðra áhrifa á svefn.
Tilkynningar hafa einnig borist til Embættis landlæknis.
Eitrunaráhrif geta verið stórhættuleg
Jóhanna Eyrún Torfadóttir er verkefnastjóri næringar hjá landlæknisembættinu.
Hún segir að einkenni koffíneitrunar geti verið stórhættuleg.
„Þetta getur orðið lífshættulegt. Þannig það er virkilega mikilvægt að fylgjast með og passa að börnin okkar séu ekki að fá svona koffín í svona háum skömmtum.“
Markaðssetningu Pre-workout er oft beint sérstaklega að unglingum í íþróttum og Jóhanna segir dæmi um að íþróttafólk sé notið til að auglýsa vörurnar.
„Það sem kannski kemur ekki fram er að það sem er mjög mikilvægt fyrir árangur í íþróttum er að fá góðan svefn. Og þú færð það ekki ef þú ert að nota vörur sem innihalda mikið koffín.“
Koffínneysla barna veldur álagi á líkamann
Í notkunarleiðbeiningum segir að neyta eigi drykkjarins stuttu fyrir æfingu.
Jóhanna segir það mikið álag á líkama barna að taka við svo miklu magni af koffíni á stuttum tíma.
„Ekki nóg með að börn séu almennt viðkvæm fyrir áhrifum koffíns en að fá svona mikið magn inn á stuttum tíma, það er enn hættulegra fyrir börn.“
Drykki, sem innihalda meira en 320 mg af koffíni á lítra, má ekki selja hér á landi nema með sérstöku leyfi en nokkrar slíkar vörur eru á íslenskum markaði.
Samkvæmt lögum þarf að merkja sérstaklega vörur sem innihalda meira en 150 milligrömm af koffíni en allur gangur er á hvort því sé framfylgt.
Eftirlit á markaði er í höndum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
„Þetta eru ekki vörur sem eru hugsaðar fyrir börn. Það má í raun og veru ekki selja þeim þetta, það er bannað samkvæmt lögum,“ segir Jóhanna.