Reyk og óþef lagði yfir suðurhluta Moskvu í nótt og í morgun eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna sem beindust meðal annars að olíuhreinsunarstöð í útjaðri borgarinnar.
Drónarnir hæfðu nokkra staði í Moskvu en aðaltilgangurinn virðist hafa verið að stöðva starfsemi mikilvægrar olíuhreinsistöðvar í Kapotnija-héraði skammt frá borginni. Árásin kom Moskvubúum algjörlega í opna skjöldu og víða á samfélagsmiðlum mátti sjá fólk lýsa ótta.
Myndir sýna svartan reyk stíga upp frá olíuhreinsistöðinni sem leiddi meðal annars til þess að flugvellinum í Moskvu var lokað í nokkrar klukkustundir og nokkur hundruð flugferðum aflýst. Stærsti flugvöllur landsins, Sheremetjevo, var rýmdur um tíma. Hann er níundi stærsti flugvöllurinn í Evrópu.
Annar dróni hæfði íbúðahús í Moskvu-héraði og brak úr honum kveikti í verslunarmiðstöð í úthverfi Moskvuborgar. Þá var einn drepinn og tveir særðust í árás í Rostov-héraði í suðurhluta Rússlands.
Pútín hélt leiðtogafund á sama tíma
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu fagnaði árásunum á samfélagsmiðlum. Hann sagði þær réttlætanleg viðbrögð við árásum Rússa og vísaði meðal annars í stóra drónaárás á Kyiv og fleiri borgir fyrr í vikunni þar sem klaustur á heimsminjaskrá var sprengt.
Rússnesk loftvarnarkerfi skutu niður um 180 dróna sem nálguðust Moskvu, að sögn Sergeis Sobjanins borgarstjóra. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að alls hafi 500 úkraínskir drónar verið skotnir niður í Rússlandi.
Fréttastofan TASS í Rússlandi segir árásina þá mestu á Moskvu í að minnsta kosti tvö ár. Hún var gerð á sama tíma og Vladimír Pútín forseti Rússlands hélt leiðtogafund þjóða í Suðaustur-Asíu í borginni Kazan, um 700 kílómetra austan við Moskvu.