Danskur ríkisborgari sem var farþegi á skemmtiferðaskipinu Hondiusi, þar sem hantaveira greindist, er í sjálfskipaðri einangrun í Kaupmannahöfn. Tveir íbúar Singapúr eru einnig í einangrun.
Að sögn danskra heilbrigðisyfirvalda fór danski ríkisborgarinn frá borði 24. apríl og sýnir engin einkenni smits. Hvorki er greint frá aldri né kyni manneskjunnar, sem sneri aftur til Danmerkur í lok apríl og er ekki sögð hafa umgengist fólkið sem smitaðist.
Þá greina heilbrigðisyfirvöld í Singapúr frá því að tveir íbúar þar, sem voru um borð í Hondiusi, séu í einangrun. Búið sé að skima þá fyrir hantaveiru en niðurstöður ekki enn ljósar.
Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samband við alla sem fóru frá borði á Sankti Helenu.
Grun um annað smit í Hollandi
Flugfreyja hollenska flugfélagsins KLM er með einkenni hantaveiru eftir að hafa verið í návígi við konu sem var um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Verið er að rannsaka hvort hún sé smituð.
Flugfélagið staðfesti í gær að konu hefði verið vísað frá borði vélar vegna veikinda daginn áður en hún lést. Vélin var á leiðinni til Amsterdam frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
Konan var um borð í Hondiusi ásamt eiginmanni sínum, hann lést á skipinu 11. apríl. Grunur er um að hjónin hafi smitast í fuglaskoðun í Argentínu en Hondius lagði úr höfn frá argentísku borginni Ushuaia 1. apríl.
Hantaveira getur borist úr nagdýrum í menn og argentínska heilbrigðisráðuneytið ætlar að rannsaka sýni úr nagdýrum í borginni. Áður höfðu hjónin einnig ferðast um Úrúgvæ og Chile.
Margir fóru frá borði 24. apríl
Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samband við alla sem fóru frá borði á Sankti Helenu.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin heldur blaðamannafund um hópsýkinguna um borð í Hondiusi í dag. En skipið sjálft er nú á siglingu frá Grænhöfðaeyjum til Tenerife. Ráðgert er að skipið komi til hafnar á laugardaginn en áhöfn og farþegar verða um borð til mánudags eða þar til flugvélar sem flytja fólkið burt lenda á eyjunum.