Tilvonandi borgarfulltrúi selur gullfallega íbúð í 101

Til sölu er glæsileg og vel skipulögð 3–4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum við Mýrargötu 27 í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða vandaða eign í húsi sem reist var árið 2017, með mikilli áherslu á gæði, þægindi og hljóðvist. Ásett verð eignarinnar er 116,9 milljónir króna.
Það eru þau Aldís Mjöll Geirsdóttir og Stein Olav Romslo sem selja íbúðina en Stein skipar 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann mun að öllum líkindum starfa sem borgarfulltrúi síðar á árinu ef marka má skoðanakannanir.
Íbúðin er samtals 120,1 fermetri að stærð og skiptist í anddyri og stigagang, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi og sjónvarpshol. Þá fylgja eigninni tvennar suðursvalir sem bjóða upp á gott útsýni og skjólgott útisvæði.
Mikil lofthæð er í hluta eignarinnar sem gefur íbúðinni rúmgott og bjart yfirbragð. Í húsinu er þrefalt gler með aukinni hljóðeinangrun og gólfhiti er á allri eigninni sem eykur þægindi til muna.
Sameign hússins er sögð afar snyrtileg og vel við haldið, auk þess sem sameiginlegur garður með útisvæði og geymsluskúr fylgir húsinu. Húsfélagið er vel rekið.
Staðsetning eignarinnar við Mýrargötu þykir afar eftirsóknarverð, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, veitingastaði, menningu og mannlíf miðborgarinnar.