Ragnar Þór Jóhannsson segist hafa verið tilkynntur til barnaverndar vegna myndar sem tekin var af honum og syni hans í Elliðaey þar sem þeir voru saman við veiðar.
Á myndinni sjást feðgarnir úti í náttúrunni í veiðifatnaði. Ragnar segir að þeir hafi stillt sér upp fyrir mynd á meðan þeir gengu um eyjuna og hafi verið með byssu meðferðis.
Það hafi, að hans sögn, nægt til þess að einhver teldi ástæðu til að senda tilkynningu til barnaverndar.
„Ég á ekki til orð yfir hvað mér finnst þetta orðið galið,“ skrifar Ragnar á Facebook.
Segist ætla að halda áfram að taka son sinn með á veiðar
Ragnar fer ekki í felur með afstöðu sína til málsins.
„Já ég fer með son minn á veiðar. Og já ég geri það með stolti,“ skrifar hann.
Hann segir markmiðið vera að kenna syni sínum að bjarga sér, vinna, þola mótlæti og bera ábyrgð á sjálfum sér. Þá leggi hann áherslu á virðingu fyrir náttúrunni, veiðinni og því lífi sem tekið er.
„Ég ætla ekki að ala son minn upp í þeirri trú að heimurinn eigi alltaf að vera mjúkur, þægilegur og hættulaus. Lífið er það ekki.“
Ragnar segist vilja að sonur hans verði að fullorðnum manni sem geti staðið með sjálfum sér og fjölskyldu sinni og ráðið við það þegar á móti blæs.
Spyr hvað sé orðið að viðmiðunum
Í færslunni ber Ragnar málið saman við annað sem börn geti orðið vitni að í samfélaginu og spyr hvers vegna mynd af föður og syni við hefðbundnar veiðar verði tilefni til afskipta barnaverndar.
„Hvað í fjandanum er orðið að viðmiðunum okkar?“ spyr hann.
Hann segir það fara mest í sig að sá sem sá myndina hafi ekki litið á hana sem mynd af föður að kenna syni sínum eitthvað sem hafi fylgt fjölskyldum og samfélaginu kynslóð eftir kynslóð.
Í staðinn hafi niðurstaðan verið: „Barnavernd.“
„Fyrir það biðst ég nákvæmlega engrar afsökunar“
Ragnar segir að ef einhver hafi raunverulegar áhyggjur af uppeldi sonar hans sé viðkomandi velkomið að ræða þær beint við hann.
Hann ætli hins vegar ekki að skammast sín fyrir að taka son sinn með á veiðar.
„Ég ætla að halda áfram að ala upp sterkan, góðan og ábyrgan strák sem kann að bjarga sér í þessum heimi.“
„Og fyrir það biðst ég nákvæmlega engrar afsökunar.“