Þrúður Vilhjálmsdóttir leikkona er látin. Hún lést á líknardeild Landspítalans 5. júlí, 53 ára að aldri, eftir snörp og erfið veikindi, að því er segir í tilkynningu frá aðstandendum.
Þrúður fæddist í Reykjavík 31. mars 1973 og ólst að hluta til upp í Svíþjóð. Hún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997 og lék sama ár Ófelíu í uppsetningu Þjóðleikhússins á leikritinu Hamlet eftir William Shakespeare.
Á sviði lék hún meðal annars í fjölda sýninga Hafnarfjarðarleikhússins og í Leikhúsi Akureyrar. Í kvikmyndum er hún mörgum minnisstæð sem Hófí í 101 Reykjavík, en hún lék einnig í Djúpinu, Foreldrum og fleiri kvikmyndum. Í sjónvarpi lék hún meðal annars í Ófærð, Broti, Ástríði, Spaugstofunni og Áramótaskaupinu.
Þá talsetti hún fjölda teiknimynda og ljáði fjölda hljóðbóka rödd sína. Þrúður starfaði einnig sem flugfreyja hjá Icelandair.
Þrúður eignaðist soninn Róbert Vilhjálm Ásgeirsson árið 2000 með Ásgeiri Halldórssyni. Eiginkona Róberts er Ingunn Anna Kristinsdóttir. Eftirlifandi eiginmaður Þrúðar er Halldór Örn Óskarsson, ljósameistari í Þjóðleikhúsinu og síðar verkefnastjóri í Hörpu.
Útför Þrúðar fer fram frá Hallgrímskirkju 15. júlí klukkan 13.