Þrír slösuðust í tveggja bíla árekstri á Þjóðvegi 1 við Mývatn fyrr í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri voru bílarnir mikið skemmdir og óökufærir eftir áreksturinn.
Ökumenn beggja bíla og einn farþegi slösuðust í árekstrinum en virtust meiðsli við fyrstu sýn vera minniháttar. Voru þeir slösuðu þó fluttir á bráðamóttöku til frekari skoðunar.