Maður særði þrjá með eggvopni á lestarstöð í borginni Winterthur í norðurhluta Sviss í morgun. Svissneska lögreglan hefur handtekið grunaðan árásarmann.
Í tilkynningu lögreglu segir að árásin hafi verið gerð skömmu eftir klukkan hálf níu að staðartíma. Maðurinn sem var handtekinn er 31 árs gamall Svisslendingur. Tildrög árásarinnar eru til rannsóknar.