Sérsveit aðstoðaði lögregluna við aðgerðir. Í tilkynningu kemur fram að Lögreglan á Suðurnesjum muni fara fram á gæsluvarðhald í dag í þágu rannsóknar málsins sem er á frumstigi. Þar kemur einnig fram að líkamsárásin sé til rannsóknar og að tveir hafi særst. Annar hafi hlotið stungusár en hinn sár á hendi.
Tilkynning hafi borist klukkan 02.40 og þegar lögregla kom á vettvang hafi fjöldi manns verið samankominn utandyra og fljótlega óskað eftir frekari aðstoð viðbragðsaðila þar sem tilkynnt var um hnífaburð.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is.