Hlekkur á vefsíðuna hefur verið í dreifingu í íslenskum Facebook-hópum og fjölmörg nöfn bæst við á síðustu dögum - þar á meðal nöfn þjóðþekktra Íslendinga. Sum nöfn á listanum eru nöfn einstaklinga sem hafa verið ákærðir eða dæmdir fyrir ofbeldisbrot en mörg ekki.
Hægt er að flokka leitarniðurstöður eftir nafni, borgum og löndum. Eftirlit með innslögum virðist lítið sem ekkert en sum nefna heila stjórnmálaflokka, fjölmiðla eða teiknimyndafígúrur sem gerendur.
Gerður er sá fyrirvari að allar fullyrðingar sem notendur birti séu óstaðfestar og ekki fyrir tilstilli þeirra sem reki vefsíðuna. Þeir hvorki styðji, staðfesti né rannsaki réttmæti yfirlýsinga.
Getur verið refsivert
Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir vefsíður sem þessar varhugaverðar. Lögregla þekki til tiltekinnar vefsíðu en hafi ekki borist tilkynningar frá einstaklingum sem þar eru nafngreindir. Það geti verið refsivert að bera fram slíkar fullyrðingar nafnlaust án þess að geta staðreynt þær.
„Það er að segja kalla einhvern kynferðisbrotamann eða ofbeldismann. Þegar þú ert að setja fram svona staðhæfingu þá þarftu að vera viss um að hún sé rétt annars gætir þú þurft að sæta ábyrgð.“
Betra að leita til lögreglu
Er tilvist þessarar vefsíðu til merkis um einhverskonar vantrausts til réttakerfisins?
„Ég veit það nú ekki. Það er ýmislegt á þessari vefsíðu. Kannski fáfræði sem býr að baki því sem er verið að setja þarna inn og alls konar vitleysa í rauninni. Auðvitað hefur það alltaf komið upp í umræðunni að þeir sem fá ekki þá úrlausn í réttarvörslukerfinu geri eitthvað slíkt til þess að vekja athygli og fá dómstól götunnar til að dæma en það er auðvitað mjög varhugavert,“ segir Hildur Sunna.
Hún mælist ekki til þess að fólk setji nöfn meintra gerenda inn á vefsíðuna í stað þess að leita til lögreglu.
„Þessi mál ganga mjög vel hjá lögreglunni í dag þ.e.a.s. ef við erum að tala um kynferðisbrot og alvarlegt ofbeldi. Þannig ég hef ekki trú á því að fólk sé að setja þarna inn í staðinn fyrir að leita til lögreglu og mæli alls ekki með því.“