Morgunblaðið birtir í dag það sem það kallar nýja skoðanakönnun Gallup fyrir samtökin Áfram Ísland um afstöðu kjósenda til þess hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum Íslands við ESB. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er hnífjafnt milli þeirra sem ætla að kjósa já og nei í atkvæðagreiðslunni.Blaðamaður Morgunblaðsins dregur ýmsar ályktanir af könnuninni og segir þetta breytingu frá því sem verið hefur í fyrri könnunum, þar sem já-sinnar hafi „verið sjónarmun fleiri.“ Af þessu dregur hann þá ályktun að andvígir hafi sótt í sig veðrið.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst: Ótrúlega lágt svarhlutfall hjá Áfram Ísland – Morgunblaðið túlkar niðurstöður frjálslega